Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti bæði í Tölti T1 og Flugskeiði í gegnum höllina sem verður haldið 12. febrúar næstkomandi klukkan 19:00. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 10. apríl kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected]. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
|
|