LEIKREGLUR FYRIR MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM 1. FORM
1.1 Meistaradeildin er einstaklings- og liðakeppni, keppt er eftir reglum FEIF einsog þær eru í upphafi hvers keppnistímabils. 1.2 Keppendur eru 32-40. 1.3 Liðin eru allt að 8 talsins með 4-5 knöpum hvert, þrír knapar úr hverju liði keppa í hverri grein. 1.4 Keppnisgreinar eru fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, gæðingaskeið PP1, slaktaumatölt T2, flugskeið P2, 150m skeið P3 og gæðingalist 1. 1.5 Lið getur á hverju tímabili kallað til knapa sem 3ja knapa utan liðs til keppni í einni grein og skal þá greiða 50.000 kr án VSK í þátttökugjald. Stig parsins teljast með í stigasöfnun liða. Knapi má einungis keppa fyrir eitt lið á tímabili. Stjórn skal samþykkja knapa og skal knapi hafa keppnisrétt innan FEIF. 1.6 Einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt í hverri grein sem aukaknapi í deildinni. Hann vinnur sér ekki inn stig nema ef knapi sé í liði í deildinni þá safnar hann stigum í einstaklingskeppninni. Þátttökugjald er 50.000 kr án VSK, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi kl 12 á hádegi á skráningardegi gilda. Meðan að tilboð eru að berast inn þá upplýsir stjórn bjóðendur ef að hærra tilboð en það sem er hæst hverju sinni berst. Ef fleiri en eitt tilboð eru jöfn þegar að skráningu lýkur þá öðlast þau öll keppnisrétt. Stjórn skal samþykkja knapa. 2. STIG Árangur keppnisliða og einstaklinga er mældur í stigum. 2.1 Í einstaklingskeppninni fá 10 efstu knapar stig. 1. sæti gefur 12 stig, 2. sæti 10 stig, 3. sæti 8 stig, 4. sæti 7 stig, 5. sæti 6 stig, 6. sæti 5 stig, 7. sæti 4 stig, 8. sæti 3 stig, 9. sæti 2 stig og 10. sæti 1 stig. 2.2 Knapi sem safnar flestum stigum á keppnistímabili er sigurvegari deildarinnar o.s.frv. 2.3 Í liðakeppninni eru stigin frá 1 til 24 og skilar sigurvegari keppnisgreinar 24 stigi til síns liðs. Sá sem er númer tvö í keppnisgrein skilar 23 stigum til síns liðs o.s.frv. 2.4 Lið sem safnar flestum stigum yfir keppnistímabilið vinnur Meistaradeild. 2.5 Séu tveir eða fleiri knapar jafnir í efsta sæti sýna dómarar sæta röðun knapa. Ef knapar eru jafnir í öðru sæti en því fyrsta, deila þeir með sér sætinu. Hlutkesti ræður úthlutun verðlauna. Verði knapar jafnir í keppnisgrein skiptast stigin jafnt á milli þeirra og á það jafnt við um liðakeppnina og einstaklingskeppnina. Engu breytir ef keppendum er úthlutaður verðlaunagripur skv. uppkasti. Fari fram dómaraúrskurður falla stigin hins vegar eftir þeirri niðurstöðu. Verðlaunafé fylgir reglum um stig, þ.e. ef knapar deila með sér stigum deila þeir verðlaunafé einnig. 2.6 Knapi sem gerir ógilda sýningu eða hlýtur 0 í einkunn hlýtur hann 0 stig. Annað gildir um keppendur í skeiðgreinum, gæðingaskeið PP1, flugskeið P2 og 150m skeið P3, ef sá knapi fær 0,0 sek. fyrir tíma hlýtur hann stig og deilir með öðrum knöpum með engan tíma. 3. ÚRSKURÐUR UM FYRSTA SÆTI Í KEPPNISGREIN OG SAMANLÖGÐUM ÁRANGRI 3.1 Í keppnisgreinum þar sem niðurstaða byggist á spjaldadómum skal skorið úr um fyrsta sæti með sætaröðun dómara. 3.2 Í skeiðkappreiðum, gæðingaskeið PP1, flugskeið P2 og 150m skeið P3er farið að öllu eftir reglum FEIF. 3.3 Ef tveir knapar eru jafnir í samanlagðri stigasöfnun eftir lokamót Meistaradeildar vinnur sá sem hefur unnið fleiri greinar. Ef knaparnir hafa jafn mörg gull ráða þá silfrin og ef þau eru jafn mörg þá bronsin o.s.frv. 3.4 Ef tvö lið eru efst og jöfn í samanlögðum stigum eftir lokamót Meistaradeildar vinnur það lið sem fleiri greinar vann í mótaröðinni, ef þau standa þá enn jöfn vinnur það lið sem oftar var í öðru sæti keppnisgreinar o.s.frv. 4. VERÐLAUN 4.1 Verðlaunagripir eru 6 í hverri keppnisgrein. Þrír efstu knapar í samanlögðum árangri á keppnistímabili fá verðlaunagripi. Farandgripur gefinn af Árna Höskuldssyni gullsmið er farandgripur í einstaklingskeppninni. 4.2 Efsta lið eftir keppnistímabil fær verðlaunagrip og farandgrip sem gefinn var af Landsambandi hestamannafélaga. Allir einstaklingar keppnisliðs, sem sigrar, fá verðlaunagrip. 4.3 Upphæð peningaverðlauna er ákveðin í upphafi hvers keppnistímabils, en gæti þó komið til endurskoðunar í lok hvers tímabils. Stigahæsti knapi og stigahæsta liðið á hverju móti fá peningaverðlaun. Efstu 3 knapar í mótaröðinni og efstu 3 liðin fá peningaverðlaun að loknu keppnistímabili. 5. KEPPNISGREINAR OG REGLUR 5.1 Keppt er eftir FEIF reglum í keppnisgreinum, fjórgangur V1, fimmgangur F1, tölt T1, gæðingaskeið PP1, slaktaumatölt T2, flugskeið P2, 150m skeið P3 og gæðingalist 1. Horft er framhjá þeim annmarka að keppt er á minni velli, ef keppt er innanhús, í fjórgang V1, fimmgang F1, tölti T1, slaktaumatölti T2, en gert er ráð fyrir í FEIF reglum, ásamt þvi að keppt er í flugskeiði P2 í gegnum reiðhöll og með styttra sprettfæri, tíminn er mældur með sjálfvirkum tímatökubúnaði 5.2 Sami hestur má keppa í öllum greinum Meistaradeildar í hestaíþróttum. 5.3 Hámarksfjöldi hesta í úrslitum skal vera 6. Ef fleiri en einn hestur er í 6 sæti skal meðaltal 5 dómara gilda, ef hestar eru enn jafnir þá skal sætaröðun 5 dómara gilda. 6. REIÐMENNSKA Dómarar geta gefið knöpum gul eða rauð spjöld eftir atvikum ef þeim finnst að knapar séu of grófir í sinni reiðmennsku. Stuðst er við viðmiðunarreglur FEIF. Jafnvel þótt fleiri en einn dómari gefi gult spjald fyrir ákveðið tilvik telst það eitt gult spjald í Meistaradeild í hestaíþróttum. Fyrir hvert gult spjald umfram eitt á keppnistímabili verða 2 stig dregin af knapa í heildar stigasöfnun einstaklings keppninnar. Ef knapi fær rautt spjald er honum vikið úr viðkomandi keppnisgrein og fær að auki í frádrátt 5 stig í heildarstigasöfnun einstaklingskeppninnar. Þetta á eingöngu við um þau atvik þegar knapi fær rautt spjald vegna grófrar reiðmennsku, en ekki í þeim tilfellum þegar rautt spjald er gefið af tæknilegum ástæðum t.d. ef fer úr braut eða riðið er of marga hringi o.s.frv. 7. KEPPENDUR / KNAPAR / LIÐ 7.1 Knapar sem taka þátt í Meistaradeild í hestaíþróttum skulu vera fullgildir meðlimir í hestamannafélagi sem er í Landssambandi hestamanna. Þar sem Landssamband hestamanna er fullgildur aðili að Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ), gilda lög og reglur ÍSÍ er varða íþróttamenn um knapa Meistaradeildar í hestaíþróttum. 7.2 Lágmarksaldur keppenda í Meistaradeild er 16 ára, 17 ára á árinu. 7.3 Meginregla er að knapar keppi fyrir sama lið frá ári til árs. Ef lið eða liðsmenn telja að breytinga sé þörf, þurfa aðilar að leita til stjórnar Meistaradeildar sem hefur þá það hlutverk að leysa málið í samráði við málsaðila með reglu 7.4 til hliðsjónar. 7.4 Hlutverk stjórnar er að tryggja hæfni knapa í Meistaradeild í hestaíþróttum og standa vörð um hag Meistaradeildarinnar og hagsmunaaðila. Til viðmiðunar hefur stjórnin m.a. niðurstöðu í mótaröð Meistaradeildar í hestaíþróttum tvö síðustu keppnistímabil, tilnefningar til knapaverðlauna og árangur á öðrum mótum. 7.5 Stjórn Meistaradeildarinnar auglýsir eftir liðum og knöpum fyrir 20. júlí ár hvert, umsóknarfrestur til að sækja um í deildinna eru 5 vikur frá því að auglýst er. 7.6 Ef liðseigendi sem á sæti í deildinni vill ekki nýta sætið, þá getur meirihluti, 3 eða fleiri knapar myndað nýtt lið sem heldur sætinu. 7.7 Ef fleiri en 8 lið sækja um þátttöku í deildinni keppir neðsta liðið við ný lið sem sækja um. 7.7.1 Fyrirkomulag: 3 knapar í hverju liði keppa í úrtöku í hverri grein sem og nýir knapar sem sækja um,keppt er í tölti T1, fjórgangi V1, fimmgangi F1 og flugskeiði P2. Halda skal úrtökuna á einum degi. 7.7.2 Úrtaka skal haldin fyrir 1. september ár hvert. 7.7.3 Stjórn hverju sinni ákveður þátttökugjald í úrtöku. 7.7.4 Fullskipuð lið eru tilkynnt á aðalfundi deildarinnar. 7.8 Knapar, liðseigandi eða þjálfari viðkomandi liðs geta leitað skýringa til yfirdómara allt að sólarhring eftir að keppni lýkur. Sé knapi, liðseigandi eða þjálfari vís um að eiga í óviðeigandi samskiptum við dómara um dóma á keppnistímabili, geta knapi, liðseigandi eða þjálfari átt á hættu að vera refsað með keppnisbanni í næstu grein. 7.9 Knapar, liðseigendur og þjálfarar eru ávallt til fyrirmyndar innan sem utan vallar, taka þátt í deildinni á eigin ábyrgð og vinna eftir samþykktum og leikreglum deildarinnar. 7.10 Knapar, liðseigendur og þjálfarar taka þátt í markaðsstarfi deildarinnar m.a. með viðtölum, myndatöku og á samfélagsmiðlum. 8. FORFÖLL KNAPA 8.1 Varanlegt forfall. Þurfi knapi að hætta keppni í Meistaradeild í hestaíþróttum eftir að lið hafa verið skipuð tekur varaknapi sæti þess sem hættir í liðinu. Þá getur liðið tilnefnt til stjórnar nýjan varaknapa í staðinn. Stjórn Meistaradeildarinnar þarf að samþykkja tilnefninguna eða leiðbeina um annan. Hlutverk stjórnar í þessu tilliti er að tryggja að hæfur knapi verði valinn. Stjórnin hefur sömu viðmið og getið er um í kafla 7. 8.2 Knapar sem keppa í Meistaradeild sökum forfalla, keppa á sama grundvelli og aðrir knapar, safna stigum fyrir lið sitt og sækja stig og verðlaun í einstaklingskeppninni eftir gildandi reglum. 8.3 Stjórn hefur heimild til að leyfa liðum að velja sér knapa utan deildarinnar séu uppi óviðráðanlegar aðstæður eftir að keppnistímabil sé hafið. 9. DÓMSTÖRF / KEPPNISVELLIR 9.1 Dómarar. Haft skal að leiðarljósi að velja hæfustu dómara sem völ er á fyrir hvert verkefni. 9.2 Yfirdómar. Yfirdómari annast málefni dómara. Yfirdómari hefur vald til að víkja dómara frá keppni hvenær sem er ef honum finnst viðkomandi dómari hafa vikið frá faglegum gildum. Yfirdómari hefur eftirlit með dómstörfum og gefur skýrslu um þau til stjórnar og dómara. 9.3 Mótsstjórn. 3 aðilar skipa mótsstjórn, yfirdómari, fulltrúi knapa og aðili valinn af stjórn Meistaradeildar í hestaíþróttum. Mótsstjórn er æðsta vald á mótsstað og hefur þannig vald til að úrskurða ef mál koma upp sem valda ágreiningi. 9.4 Kærufrestur. Knapar og lið hafa eina klukkustund eftir að verðlauna afhending lýkur til að kæra framkvæmd eða útreikninga keppnisgreinar. Að þeim tíma liðnum standa niðurstöður. Kærur sem berast að loknu móti fara á sameiginlegt borð stjórnar, mótsstjórnar og eins fulltrúa knaparáðs, sem verða að kynna niðurstöðu innan tveggja sólarhringa frá því að kæra berst. Einkunnir dómara eru ekki kæranlegar. 9.5 Úrskurðar og aganefnd. Ef ekki fæst niðurstaða samkvæmt gr. 9.4 þá er hægt að vísa málum til Úrskurðar- og aganefndar LH, sjá kafla 4.3 í reglum LH: https://www.lhhestar.is/static/files/Log_LH/Logogreglur2023/reglugerd-um-motahald-a-islandi_180423a.pdf 9.6 Vallarstjórn. 3 aðilar skipa vallarstjórn, einn úr stjórn, fulltrúi knapa og yfirdómari. Vallarstjórn tryggir að vellir, reiðhallir, upphitunarsvæði og merkingar séu ásættanlegar degi fyrir æfingar og á mótsdag. Vallarstjórn fer yfir keppnisvæði með leigusölum a.m.k. 1 mánuði fyrir mót hvort úrbóta sé þörf. Þannig samþykkt á aðalfundi Meistaradeildar í hestaíþróttum þann 26. september 2023 |