Þá er það orðið ljóst hverjir mæta í Gæðingalistina á föstudaginn í Meistaradeild Líflands 2024. Dregið var í ráslista í beinni útsendingu á ALENDIS fyrr í kvöld þar sem m.a. kom í ljós að 5 villikettir eru að mæta fyrir hönd 5 liða. Það segir okkur að flest lið eru að leita út fyrir sinn hóp til að styrkja sig fyrir kvöldið, en það kemur ekki í ljós hverjir það eru fyrr en þau ríða í braut. Einnig mætir uppboðsknapi en það er hún Hanne Smidesang með Tón frá Hjarðartúni.
Að öðru leyti eru skráðir bæði knapar og hestar sem má búast við miklu af. Glódís Rún sem stendur stigahæst í liðakeppninni ætlar sér eflaust að halda þeirri forystu og Jakob Svavar mun gera atlögu í að ná þeirri forystu - en hann er í öðru sæti í stigakeppninni sem stendur. Annars má ætla að einhverjir munu koma okkur á óvart og má búast við því að villikettirnir komi sterkir til leiks. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Olil Amble, mætti sem villiköttur fyrir lið Hjarðartúns í fyrra og stóð uppi sem sigurvegari og jafnvel leynist hún sem einn af villiköttunum í ár. En það kemur allt í ljós á föstudaginn og vonumst við til að sjá sem flesta í stúkunni á Ingólfshvoli! Keppni hefst kl. 19:00 á föstudaginn í HorseDay höllinni. FRÍTT verður inn í í boði BÍLFANG BÍLASÖLU. Frábærar veitingar og hlaðborð á staðnum fyrir og á meðan keppni stendur og ef þið pantið fyrir fram á hlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti. Allar pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má nálgast á info@ingolfshvoll. Sjáumst í HorseDay höllinni á föstudaginn! RÁSLISTI GÆÐINGALIST 1 Guðmar Þór Pétursson Sókrates frá Skáney Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 2 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti Hrímnir / Hest.is 3 Ólafur Andri Guðmundsson Dröfn frá Feti Austurkot / Pula 4 Helga Una Björnsdóttir Hátíð frá Efri-Fitjum Hjarðartún 5 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof 6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hylur frá Flagbjarnarholti Top Reiter 7 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum Hestvit / Árbakki 8 Jón Ársæll Bergmann Halldóra frá Hólaborg Austurkot / Pula 9 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Hjarðartún 10 Villiköttur Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 11 Villiköttur Hrímnir / Hest.is 12 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Ganghestar / Margrétarhof 13 Teitur Árnason Hafliði frá Bjarkarey Top Reiter 14 Hanne Smidesang Tónn frá Hjarðartúni Uppboðsknapi 15 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Hestvit / Árbakki 16 Villiköttur Austurkot/Pula 17 Villiköttur Hjarðartún 18 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is 19 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof 20 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 21 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli Hestvit / Árbakki 22 Villiköttur Top Reiter |
|