MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

​Ráslisti í Gæðingafimi Meistaradeildar Líflands 2021 / Starting list

9/3/2021

Comments

 
Picture
>english below
Á fimmtudaginn n.k. verður keppt í gæðingafimi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á Ingólfshvoli í Ölfusi. Húsið opnar klukkan 18:00 og hefst mótið klukkan 19:00. Nú er loksins hægt að kaupa miða í stúkuna – en 100 miðar eru í boði. Miðasala fer eingöngu fram á Tix.is (https://tix.is/is/search/?k=Meistaradeild), getur hver aðili keypt að hámarki 5 miða og gera þarf grein fyrir hver muni noti miðann, ásamt símanúmeri og kennitölu. Áfram verður hægt að fylgjast með í beinni á Rúv2 eða í gegnum streymi á Alendis TV. 
 
Gæðingafimin er krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfleika, þjálfunarstig hests og knapa, fegurð, kraft og glæsileik. Sýningin er spuni og ræðst árangur m.a. af útfærslu og frumkvæði knapa. Sýnandi fær 4-4,5 mínútur til þess að sýna það besta sem knapi og hestur hefur upp á að bjóða. Dómarar verða 10, dæma þeir í fimm pörum – þar sem hæsta og lægsta einkunn dettur út.
 
Í fyrra voru það Elin Holst og Frami sem sigruðu og eru þau á ný skráð til leiks. Nú í kvöld var dregið í ráslista og má þar sjá hvert stjörnuparið á eftir öðru. Það er því ljóst að leikar verða mjög spennandi þetta árið. Hér að neðan má sjá ráslista kvöldsins:
On Thursday we will compete in Gæðingadressage at Ingólfshvoll in Ölfus and this time we can have audience on the stands. 100 tickets will be sold only online at Tix.is. You can still watch the stream at Alendis Tv or if your are located in Iceland - you can watch live on RÚV2.  

Last year it was Elin Holst and Frami frá Ketilsstöðum who won and they are again on the starting list. Tonight the starting list was drawn and this year there are so many super stars competing. So this will definitely be a very exciting event.  Below you can see the starting list. 

RÁSLISTI Í GÆÐINGAFIMI MEISTARADEILDAR LÍFLANDS 2021

  1. Hulda Gústafsdóttir og Sesar frá Lönguskák - Hestvit / Árbakki
  2. Sigursteinn Sumarliðason og Skráma frá Skjálg – Skeiðvellir / Árheimar
  3. Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ – Ganghestar / Margrétarhof
  4. Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhóli – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  5. Helga Una Björnsdóttir og Hraunar frá Vorsabæ II - Hjarðartún
  6. Arnar Bjarki Sigurðarson og Örn frá Gljúfurárholti – Hrímnir / Hest.is
  7. Olil Amble og Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum – Gangmyllan
  8. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu – Top Reiter
  9. Jóhann Kristinn Ragnarsson og Kvarði frá Pulu - Hestvit / Árbakki
  10. Glódís Rún Sigurðardóttir og Glymjandi frá Íbishóli – Ganghestar / Margrétarhof
  11. Villiköttur – Skeiðvellir / Árheimar
  12. Benjamín Sandur Ingólfsson og Smyrill frá V-Stokkseyrarseli – Hrímnir / Hest.is
  13. Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Fengur frá Auðsholtshjáleigu – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  14. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II – Top Reiter
  15. Elin Holst og Frami frá Ketilsstöðum – Gangmyllan
  16. Jakob Svavar Sigurðsson og Hálfmáni frá Steinsholti – Hjarðartún
  17. Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi - Hestvit / Árbakki
  18. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Ölnir frá Akranesi – Ganghestar / Margrétarhof
  19. Villiköttur – Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
  20. Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási – Top Reiter
  21. Matthías Leó Matthíasson og Taktur frá Vakursstöðum – Skeiðvellir / Árheimar
  22. Þórarinn Ragnarsson og Leikur frá Vesturkoti - Hjarðartún
  23. Viðar Ingólfsson og Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu 2 – Hrímnir / Hest.is
  24. Bergur Jónsson og Glampi frá Ketilsstöðum – Gangmyllan
  25. Hanne Oustad Smidesang og Roði frá Hala - Uppboðssæti
Comments
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule