MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti sigra fjórgang meistaradeildar Líflands

25/1/2024

Comments

 
Picture
Fyrsta keppniskvöldið í Meistaradeild Líflands fór fram í HorseDay höllinni í kvöld, fimmtudaginn 25. janúar þegar keppt var í fjórgangi. Frábær stemning var hér í Ölfusinu og létu gestir og keppendur ekki vetrar færðina á sig fá og var þétt setið í stúkunni. Aðstæður voru til fyrirmyndar á staðnum og vel tekið á móti knöpum og áhorfendum. Veisluþjónusta Suðurlands var með glæsilegt hlaðborð og aðrar veitingar í boði og vakti lukku gesta. 

Það voru þau Eyrún Ýr og Úlfur frá Hrafnagilið sem riðu á vaðið með hreint út sagt glæsilegri sýningu en þetta var þeirra fyrsta mót og enduðu rétt fyrir utan úrslit að þessu sinni. Þar á eftir komu frábærar sýningar en að lokinni forkeppni voru það sigurvegararnir frá því í fyrra þau Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum sem leiddu með nokkrum yfirburðum með einkunnina 7.87 . Þar á eftir komu Jakob Svavar og Skarpur frá Kýrholti með 7.5, þriðju voru þau Ragnhildur og Úlfur frá Mosfellsbæ og Glódís og Breki frá Austurási jöfn með 7.37, Jóhanna Margrét og Kormákur frá Kvistum með 7.33 fimmtu og loks Gústaf Ásgeir og Assa frá Miðhúsum með 7.3.  Þessir knapar riðu sig því inn í A-úrslit sem voru jöfn og spennandi allt til loka. Eftir brokkið leiddu Ragnhildur og Úlfur en eftir fetið voru það Gústaf og Aðalheiður sem voru jöfn. Að lokum var það svo Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti sem stóðu uppi sem sigurvegarar og hlutu einkunnina 7.80 og sigra fyrsta mót Meistaradeildarinnar 2024. Rétt á hæla hans kom Aðalheiður og Flóvent, en smá hnökrar í stökk sýningunni voru henni dýr en þau höfnuðu önnur með einkunnina 7.70. Í þriðja sæti voru þau Glódís Rún og Breki frá Austurási með 7.57, í fjórða hafnaði Gústaf Ásgeir og Assa frá Miðhúsum með 7.5, í fimmta sæti voru Ragnhildur og Úlfur með 7.47 og í sjötta sæti voru þau Jóhanna Margrét og Kormákur frá Kvistum með 7.43. 



Picture
Liðakeppni kvöldsins sigraði lið Hestvit/Árbakka með 53 stig en liðið var með alla sína þrjá knapa í úrslitum, Glódísi Rún, Gústaf Ásgeir og Jóhannu Margréti. Síðan er það svo Jakob Svavar sem leiðir einstaklingskeppnina með 12 stig. 
Picture
Við í stjórn meistaradeildar viljum þakka frábærar móttökur á fyrsta móti ársins og óskum knöpum til hamingju með árangurinn. Sjáumst næst 8. febrúar í HorseDay höllinni Ingólfshvoli þegar keppt verður í slaktaumatölti T2. Í fyrra voru það þær Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum sem sigruðu og búumst við að þau vilji endurtaka leikinn. 

​Sjáumst í HorseDay höllinni eftir tvær vikur!


​
NIÐURSTÖÐUR
1 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,80
2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,70
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási 7,57
4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum 7,50
5 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ 7,47
6 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum 7,43
7 Helga Una Björnsdóttir Bylgja frá Barkarstöðum 7,17
8 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 7,03
9-10 Hans Þór Hilmarsson Fákur frá Kaldbak 7,00
9-10 Jón Ársæll Bergmann Halldóra frá Hólaborg 7,00
11-12 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 6,97
11-12 Eyrún Ýr Pálsdóttir Úlfur frá Hrafnagili 6,97
13-14 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli 6,90
13-14 Árni Björn Pálsson Alda frá Dalsholti 6,90
15 Teitur Árnason Aron frá Þóreyjarnúpi 6,87
16 Viðar Ingólfsson Þormar frá Neðri-Hrepp 6,83
17 Arnar Bjarki Sigurðarson Logi frá Lerkiholti 6,80
18-19 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka 6,77
18-19 Ólafur Andri Guðmundsson Goði frá Garðabæ 6,77
20 Hanna Rún Ingibergsdóttir Móeiður frá Vestra-Fíflholti 6,27
21 Sigurður Sigurðarson Gaukur frá Steinsholti II 6,23
22 Birta Ingadóttir Hrönn frá Torfunesi 5,67
Picture
Comments
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule