Næsta mót Meistaradeildar verður haldið laugardaginn 26.mars á Brávöllum á Selfossi þegar knapar keppa í Gæðingaskeiði og 150m skeiði. Keppni hefst kl 11.
Að venju verður bein útsending frá Rúv2 og Alendis. Knapi sem vill keppa í skeiði í Meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Skráning fer fram á [email protected] og lýkur á hádegi kl 12 fimmtudaginn 25. mars. Þátttökugjald er 50.000kr. Hér er hægt að nálgast reglur um uppboðssæti Meistaradeildar https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html. Hlökkum til að sjá ykkur. |
|