Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti bæði í gæðingaskeiði og 150 m skeiði sem haldið verður á Brávöllum, Selfossi laugardaginn 30. mars næstkomandi klukkan 14:00. Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 28. mars kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected]. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
|
|