Í fyrra voru það Teitur Árnason og Taktur frá Vakurstöðum sem sigruðu eftir hörkuspennandi keppni. Það verður gaman að sjá hverjir munu mæta til leiks á fimmtudaginn en það kemur í ljós á þriðjudaginn kl. 20:00 þegar dregið verður í rásröð í beinni útsendingu á Alendis.
Eins og síðustu keppnir verður veitingasalur HorseDay hallarinnar opinn þar sem Tómas Þóroddsson, veitingaeigandi á Selfossi, mun sjá um mat og aðrar veitingar fyrir gesti og gangandi frá klukkan 17:30. Þeir sem panta mat á [email protected] fá frátekið sæti á besta stað i stúkunni. Tilvalið fyrir vinina og fjölskylduna. Hlökkum til að sjá ykkur í HorseDay höllinni, stjórn Meistaradeildar Líflands. |
|