Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Gæðingalist sem fer fram föstudaginn 15. mars næstkomandi. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 13. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected]. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
|
|