Í fyrra voru það Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólstað sem sigruðu nokkuð óvænt eftir hörkuspennandi keppni og verður gaman að sjá hvort þeir félagar mæti aftur til leiks til að verja titilinn. En það kemur í ljós á þriðjudaginn kl. 20:00 þegar dregið verður í rásröð í beinni útsendingu á Alendis.
Eins og síðast verður veitingasalur HorseDay hallarinnar opinn þar sem Tómas Þóroddsson, veitingaeigandi á Selfossi, mun sjá um mat og aðrar veigar fyir gesti og gangandi frá klukkan 17:30. Uppboðssæti Knapi sem vill keppa í slaktaumatölti getur keypt sér keppnisrétt sem 25. knapi kvöldsins. Skráning fer fram á [email protected] og lýkur kl. 12:00 þriðjudaginn 7. febrúar. Þátttökugjald er 50.000kr + vsk.. Séu fleiri en einn sem bjóða mun hæsta boð gilda. |
|