MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Aðalheiður sigurvegari í Slaktaumatölti 2021

11/2/2021

Comments

 
Picture
Keppni í slaktaumatölti T2 í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram á Ingólfshvoli í Ölfusi í kvöld (11. febrúar). Eins og í fyrri keppni var mótið haldið án áhorfenda en sýnt var beint á RÚV2 og streymt var til erlendra áhorfenda á AlendisTV. 
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og hestur hennar Óskar frá Breiðstöðum voru með nokkuð örugga forystu eftir forkeppni með einkunnina 7,97. Þau enduðu einnig sem sigurvegarar í úrslitum með einkunnina 8,20
Árni Björn og Katla frá Hemlu hækkuðu sig í úrslitum í annað sætið úr því sjötta frá forkeppni en Jakob á Kopar frá Fákshólum komu fast á hæla þeirra og enduðu í því þriðja.

Lið Top Reiter hlaut liðaplatt­ann en liðið var með tvo knapa í A-úr­slit­um, þá Árna Björn Pálsson og Teit Árnason. Eft­ir gott gengi í slaktauma­tölt­inu hækkaði liðið sig líka úr 5. sæti í liðakeppn­inni yfir í 2. sætið með  92 stig. En efst í liðakeppn­inni er lið Hestvits / Árbakka með 105 stig og í því þriðja er lið Hjarðartúns með 85,5 stig.
Efst­ur í ein­stak­lingskeppn­inni er  Jakob Svavar Sigurðsson úr liði Hjarðartúns með 18 stig en saman í öðru sæti eru þau Jóhanna Margrét Snorradóttir úr liði Hestvits / Árbakka og Árni Björn Pálsson úr liði Top Reiter, bæði með 15 stig.
Niðurstöður úrslita voru eftirfarandi:
  1. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir - Óskar frá Breiðstöðum - Ganghestar / Margrétarhof 8,2
  2. Árni Björn Pálsson - Katla frá Hemlu II - Top Reiter  7,87
  3. Jakob Svavar Sigurðsson - Kopar frá Fákshólum – Hjarðartún 7,83
  4. Jóhanna Margrét Snorradóttir - Bárður frá Melabergi - Hestvit / Árbakki 7,75
  5. Teitur Árnason - Brúney frá Grafarkoti - Top Reiter  7,63
  6. Helga Una Björnsdóttir - Þoka frá Hamarsey – Hjarðartún 7,2
Dómarar kvöldsins voru:
Páll Briem, Svanhildur Hall, Erlendur Árnason, Sigurður Ævarsson og Sigurbjörn Viktorsson.
Yfirdómari kvöldsins var Sigríður Pjetursdóttir.
Niðurstöður úr forkeppni:
1. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum 7,97
2-3. Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi 7,80
2-3. Teitur Árnason / Brúney frá Grafarkoti 7,80
4. Jakob Svavar Sigurðsson / Kopar frá Fákshólum 7,63
5. Helga Una Björnsdóttir / Þoka frá Hamarsey 7,57
6. Árni Björn Pálsson / Katla frá Hemlu II 7,47
7-8. Elin Holst / Frami frá Ketilsstöðum 7,43
7-8. Hinrik Bragason / Kveikur frá Hrísdal 7,43
9. Davíð Jónsson / Ólína frá Skeiðvöllum 7,33
10. Matthías Leó Matthíasson / Doðrantur frá Vakurstöðum 7,23
11. Viðar Ingólfsson / Skál frá Skör 7,20
12. Siguroddur Pétursson / Eldborg frá Haukatungu Syðri 1 7,10
13. Gústaf Ásgeir Hinriksson / Doktor frá Dallandi 7,07
14. Eyrún Ýr Pálsdóttir / Njörður frá Feti 7,00
15. Bergur Jónsson / Goði frá Ketilsstöðum 6,87
16. Ásmundur Ernir Snorrason / Spyrna frá Strandarhöfði 6,67
17. Ragnhildur Haraldsdóttir / Katla frá Mörk 6,63
18. Arnar Bjarki Sigurðarson / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum 6,53
19. Snorri Dal / Engill frá Ytri-Bægisá I 6,50
20. Sigurður Sigurðarson / Narfi frá Áskoti 6,47
21. Janus Halldór Eiríksson / Blíða frá Laugarbökkum 6,27
22. Þórdís Erla Gunnarsdóttir / Askur frá Enni 6,10
23. Guðmundur Björgvinsson / Ópera frá Litla-Garði5,90
24. Glódís Rún Sigurðardóttir / Glymjandi frá Íbishóli 4,97

 

Comments
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News (EN)
  • Aktuelles (DE)
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule