Ótrúlegu tímabili Meistaradeildar Líflands 2024 er nú lokið og hefur veturinn verið virkilega skemmtilegur og oft á tíðum alveg gríðarlega spennandi. Hestakosturinn hefur verið með glæsilegasta móti og knaparnir verið til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Lokamót Meistaradeildarinnar var haldið í gær þegar keppt var í Tölti og Flugskeiði í gegnum höllina. Leikar fóru svo að Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli sigruðu töltið eftir virkilega spennandi og flott A-úrslit. Næst var komið að Flugskeiðinu. Þar voru margir af fljótustu vekringum landsins skráðir til leiks og mátti búa sig undir að sjá á feikna fljóta spretti í gegnum höllina. En leikar fóru svo að Árni Björn Pálsson og Ögri frá Horni I fóru hraðast og sigruðu flugskeiðið nokkuð örugglega!
HÉR má sjá nánari niðurstöður úr töltinu. HÉR má nálgast nánari úrslit úr skeiðinu. Svo var komið að því sem allir höfðu beðið eftir - að telja stig kvöldsins og krýna sigahæsta einstaklinginn og sigahæsta lið Meistaradeildar Líflands 2024. Fyrir kvöldið leiddi Glódís Rún einstaklingskeppnina og lið Ganghesta/Margrétarhofs liðakeppnina. Eftir töltið hélt Glódís sinni forystu en lið Hestvits/Árbakka var komið á toppinn í liðakeppninni. Fyrir skeiðið mátti litlu muna milli efstu knapa og liða og ríkti gríðarlega spenna hverjir myndu standa uppi sem sigurvegarar! En leikar fóru svo að með sigri Árna Björns í flugskeiðinu fór hann úr fjórða sæti upp í það fyrsta og tryggði sér þar með sigurinn í einstaklingskeppni Meistaradeildar Líflands 2024! Liðakeppnin fór svo að eftir liðasigur í Flugskeiðinu gulltryggði lið Hestvits/Árbakka stöðu sína á toppnum og eru því sigurvegarar í liðakeppni Meistaradeildar Líflands 2024! Stjórn Meistaradeildarinnar vill óska knöpum innilega til hamingju með sinn árangur í deildinni í vetur. Við erum gríðarlega ánægð með samvinnuna við knapa og liðseigendur og viljum þakka öllum þeim sem komu að deildinni á einn eða annan hátt. Styrktaraðilar, samstarfsaðilar, sjálfboðaliðar, knapar og liðseigendur, takk fyrir samstarfið í Meistaradeild Líflands 2024! Eftir æsispennandi töltkeppni á lokamótinu sem haldið var í gær, föstudaginn 12. apríl, var það Flugskeið í gegnum höllina sem var næst og síðasta grein deildarinnar. Það voru ótrúlega magnaðir vekringar skráðir til leiks og eftir fyrri umferð höfðu nær allir hestar legið. Árni Björn Pálsson og Ögri frá Horni I leiddu fyrsta sprett á tímanum 5.73. Meiri vandræði virtust vera hjá knöpum í seinni umferð og enginn náði að bæta tíma Árna Björns. Hann stóð því hann uppi sem sigurvegari í Flugskeiði Meistaradeildar Líflands 2024. Í öðru sæti var Gústaf Ásgeir og Sjóður frá Þóreyjarnúpi á tímanum 5.81 og Guðmar Þór Pétursson í því þriðja á tímanum 5.82. Lið Árbakka / Hestvits endurtók leikinn frá því í töltinu og sigruðu liðakeppnina nokkuð örugglega að þessu sinni með 49 stig. Þau voru með alla sína knapa í topp 10 en það voru Gústaf Ásgeir, Jóhanna Margrét og Glódís sem kepptu fyrir liðið. Rún en hér má sjá þau ásamt sínum liðsfélögum Pierre, Jóhönnu Margréti og Fredricu sátt með sitt gegni í töltinu. Liðakeppni Flugskeið 1 Hestvit / Árbakki 49 2 Top Reiter 41 3 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 36 4 Hjarðartún 31 5 Hrímnir / Hest.is 30 6 Ganghestar / Margrétarhof 25 7 Austurkot / Pula 19 Niðurstöður - Flugskeið
1 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 5,72 2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 5,81 3 Guðmar Þór Pétursson Friðsemd frá Kópavogi 5,82 4 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 5,86 5 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 5,88 6 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti 5,89 7 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni 5,91 8 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri 5,91 9 Glódís Rún Sigurðardóttir Vinátta frá Árgerði 5,92 10 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað 5,94 11 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 5,95 12 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði 5,98 13 Guðmundur Björgvinsson Ögrunn frá Leirulæk 6,02 14-15 Benjamín Sandur Ingólfsson Ljósvíkingur frá Steinnesi 6,04 14-15 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi 6,04 16 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 6,05 17 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Erla frá Feti 6,06 18 Hanna Rún Ingibergsdóttir Orka frá Kjarri 6,15 19 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri 6,53 20 Sigurður Vignir Matthíasson Magnea frá Staðartungu 6,54 21 Jóhann Kristinn Ragnarsson Gnýr frá Brekku 0,00 Lokamót Meistaradeildar Líflands var haldið hátíðlegt í gær, föstudaginn 12. apríl. Framundan var keppni í Tölti og skeiði en kvöldið hófst á forkeppni í Tölti T1. Forkeppnin var gríðarlega sterk og mátti sjá virkilega glæsilegar sýningar. Það voru þeir félagar Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli sem riðu síðastir í braut og skutu sér á topp sætið að lokinni forkeppni. Þeirri forystu hélt hann allt til enda og stóð uppi sem sigurvegarar í Tölti í Meistaradeild Líflands 2024 með einkunnina 8.83! Í öðru til þriðja sæti voru tveir knapar jafnir, Gústaf Ásgeri Hinriksson á Össu frá Miðhúsum og Árni Björn Pálsson á Kastaníu frá Kvsitum með einkunnina 8.50. Það var svo lið Árbakka / Hestvits sem sigraði liðakeppnina nokkuð naumlegaga með 41.5 stig. Þau voru með tvo af sínum knöpum í úrslitum, Gústaf Ásgeir og Glódísi Rún en hér má sjá þau ásamt sínum liðsfélögum Pierre, Jóhönnu Margréti og Fredricu sátt með sitt gegni í töltinu. Liðakeppni Tölt
1 Hestvit / Árbakki 41.5 2 Austurkot / Pula 40 3 Hjarðartún 37 4 Top Reiter 36.5 5 Ganghestar / Margrétarhof 30 6 Hrímnir / Hest.is 28 7 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 18 Þegar hingað var komið við sögu var ein keppni fram undan sem mundi mögulega ráða úrslitum í stigakeppninni. Flugskeið í gegnum höllina var eftir og var það ljóst að gott gengi þar gæti haft mikil áhrfi á það hverjir stæðu uppi sem sigurvegarar Meistaradeildarinnar 2024 þar sem mjög mjótt var á munum, bæði í einstaklings og liðakeppninni. Liðakeppni að loknu tölti 1 Hestvit/Árbakki 276 2 Ganghestar/Margrétarhof 269 3 Top Reiter 252 4 Hjarðartún 243 5 Austurkot/Pula 196 6 Hrímnir/Hest.is 194 7 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 186 Einstaklingskeppni að loknu tölti 1 Glódís Rún Sigurðardóttir 39.5 2 Jakob Svavar Sigurðsson 37 3 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 33 4 Gústaf Ásgeir Hinriksson 31.75 5 Árni Björn Pálsson 30 6 Ásmundur Ernir Snorrason 26 Niðurstöður Tölt 1 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Austurkot / Pula 8,83 2-3 Árni Björn Pálsson Kastanía frá Kvistum Top Reiter 8,50 2-3 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum Hestvit / Árbakki 8,50 4 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Hjarðartún 8,44 5 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is 8,39 6 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Ganghestar / Margrétarhof 8,06 7 Teitur Árnason Dússý frá Vakurstöðum Top Reiter 7,87 8 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof 7,83 9-11 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof 7,77 9-11 Ólafur Andri Guðmundsson Salka frá Feti Austurkot / Pula 7,77 9-11 Guðmar Þór Pétursson Sókrates frá Skáney Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 7,77 12 Helga Una Björnsdóttir Bylgja frá Barkarstöðum Hjarðartún 7,73 13 Hans Þór Hilmarsson Vala frá Hjarðartúni Hjarðartún 7,50 14 Viðar Ingólfsson Vonandi frá Halakoti Hrímnir / Hest.is 7,47 15 Jón Ársæll Bergmann Móeiður frá Vestra-Fíflholti Austurkot / Pula 7,43 16 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum Hestvit / Árbakki 7,40 17 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 7,33 18 Bergur Jónsson Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum UPPBOÐSSÆTI 7,23 19 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Ganghestar / Margrétarhof 7,13 20-21 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli UPPBOÐSSÆTI 7,00 20-21 Flosi Ólafsson Röðull frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is 7,00 22 Eyrún Ýr Pálsdóttir Fjalar frá Vakurstöðum Top Reiter 6,93 23 Guðmundur Björgvinsson Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 6,77 Þá er það orðið ljóst hverjir mæta til leiks á föstudaginn þegar keppt verður í bæði Flugskeiði og Tölti T1, en dregið var í beinni útsendingu á ALENDIS nú rétt í þessu. Sigurvegarinn í skeiði frá því í fyrra mætir með annan hest að þessu sinni en Konráð Valur mætir með Kastor frá Garðshorni en þeir sigruðu Gæðingaskeiðið á síðasta móti. Árni Björn og Kastanía frá Kvistum sigruðu töltið í fyrra og eru skráð til leiks og má búast við miklu af því pari. Tveir uppboðsknapar eru skráðir til leiks í tölti, Bergur Jónsson á Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum og Fredrica Fagerlund á Stormi frá Yztafelli. Virkilega skemmtileg viðbót við annars glæsilegan hóp. Keppni hefst kl. 19:00 í HorseDay höllinni Ingólfshvoli. Minnum ykkur á að panta hlaðborð og fá frátekið sæti í stúkunni! Húsið opnar kl. 17:00! Ráslisti - Flugskeið
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi Hestvit / Árbakki 2 Guðmundur Björgvinsson Ögrunn frá Leirulæk Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 3 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir / Hest.is 4 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri Austurkot / Pula 5 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 Ganghestar / Margrétarhof 6 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni Hjarðartún 7 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri Top Reiter 8 Guðmar Þór Pétursson Friðsemd frá Kópavogi Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 9 Benjamín Sandur Ingólfsson Ljósvíkingur frá Steinnesi Hrímnir / Hest.is 10 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Erla frá Feti Ganghestar / Margrétarhof 11 Glódís Rún Sigurðardóttir Vinátta frá Árgerði Hestvit / Árbakki 12 Jóhann Kristinn Ragnarsson Gnýr frá Brekku Austurkot / Pula 13 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ Hjarðartún 14 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter 15 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási Hrímnir / Hest.is 16 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti Hestvit / Árbakki 17 Hanna Rún Ingibergsdóttir Orka frá Kjarri Austurkot / Pula 18 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 19 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Top Reiter 20 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún 21 Sigurður Vignir Matthíasson Magnea frá Staðartungu Ganghestar / Margrétarhof Ráslisti - Tölt T1 1 Bergur Jónsson Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum UPPBOÐSSÆTI 2 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli UPPBOÐSSÆTI 3 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum Hestvit / Árbakki 4 Hans Þór Hilmarsson Vala frá Hjarðartúni Hjarðartún 5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof 6 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is 7 Ólafur Andri Guðmundsson Salka frá Feti Austurkot / Pula 8 Guðmundur Björgvinsson Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 9 Eyrún Ýr Pálsdóttir Fjalar frá Vakurstöðum Top Reiter 10 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Hjarðartún 11 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof 12 Guðmar Þór Pétursson Sókrates frá Skáney Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 13 Flosi Ólafsson Röðull frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is 14 Jón Ársæll Bergmann Móeiður frá Vestra-Fíflholti Austurkot / Pula 15 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Hestvit / Árbakki 16 Árni Björn Pálsson Kastanía frá Kvistum Top Reiter 17 Helga Una Björnsdóttir Bylgja frá Barkarstöðum Hjarðartún 18 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Ganghestar / Margrétarhof 19 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 20 Viðar Ingólfsson Vonandi frá Halakoti Hrímnir / Hest.is 21 Gústaf Ásgeir Hinriksson Assa frá Miðhúsum Hestvit / Árbakki 22 Teitur Árnason Dússý frá Vakurstöðum Top Reiter 23 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Austurkot / Pula Nú er komið að lokamót Meistaradeildar Líflands sem fer fram föstudaginn 12. apríl næstkomandi í HorseDay höllinni Ingólfshvoli. Keppt verður í Tölti T1 og Flugskeiði í gegnum höllina ásamt því að í ljós kemur hverjir standa uppi sem sigurvegarar Meistaradeildarinnar 2024. Það er óhætt að segja að virkilega spennandi og hörð keppni sé framundan bæði í tölti og skeiði en ekki síður í stigakeppninni. Mjög mjótt er á milli efstu sæta bæði í einstaklings- og liðakeppninni og úrslitin að öllu óráðin. Lífland mun bjóða áhorfendum frítt í höllina og að vanda verða frábærar veitingar í boði fyrir áhorfendur í HorseDay höllinni á vegum Veisluþjónustu Suðurlands. Ef pantað er fyrir fram er í kaupbæti frátekið sæti í stúkunni. Tryggið ykkur miða HÉR því ekki er víst að allir komist að sem vilja. Húsið opnar klukkan 17:00 og hefst keppni stundvíslega klukkan 19:00! Nánari upplýsingar um veitingarnar má nálgast á info@ingolfshvoll.is. Þeir sem ekki komast þá að sjálfsögðu mælum við með að tryggja sér áskrift hjá ALENDIS og fylgist með í beinni útsendingu. Glódís Rún Sigurðardóttir leiðir einstaklingskeppnina með 34.5 stig en mikil spenna ríkir milli efstu knapa og nóg eftir af stigum í pottinum. Hún hefur haldið öruggri forystu í allan vetur og megum við búast við því að hún mæti vel undirbúin til leiks og stefni á ekkert nema sigur. Það eru þó nokkrir knapar sem enn geta gert atlögu að sigri og má búast við að þeir leggi allt í sínar sýningar til að ná toppsætinu. Staðan í einstaklingskeppni 1 Glódís Rún Sigurðardóttir 34.5 2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 30 3 Jakob Svavar Sigurðsson 30 4 Gústaf Ásgeir Hinriksson 22.75 5 Árni Björn Pálsson 21 Það er svo lið Ganghesta/Margrétarhofs sem leiðir liðakeppnina með 239 stig en rétt á hæla þeirra eru lið Hestvits/Árbakka og Top Reiter sem eiga meðal annars möguleika á að sigra Meistaradeildina 2024. Staðan í liðakeppninni 1 Ganghestar / Margrétarhof 239 2 Hestvit / Árbakki 234.5 3 Top Reiter 215.5 4 Hjarðartún 206 5 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 168 6 Hrímnir / Hest.is 166 7 Austurkot / Pula 156 Í fyrra voru það Árni Björn Pálsson og Kastanía frá Kvistum sem sigruðu töltið en Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II sigruðu flugskeiðið. Munu þau mæta aftur til leiks og endurheimta sigurinn? Það kemur allt í ljós á föstudaginn! Þetta vill enginn láta framhjá sér fara!
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti bæði í Tölti T1 og Flugskeiði í gegnum höllina sem verður haldið 12. febrúar næstkomandi klukkan 19:00. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 10. apríl kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sjóður frá Þóreyjarnúpi sigra 150m skeið Meistaradeildar Líflands 2024!3/30/2024 Keppni í 150m skeiði hófst á glæsilegum spretti Hans Þórs Hilmarssonar á Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði þegar hann hleypti einn brautina á tímanum 14.62 sek. Við tóku virkilega spennandi kappreiðar þar sem tímarnir voru með glæsilegasta móti miðað við árstíma og ekki margir sprettir sem klikkuðu. Það fór svo eftir hörku spennandi lokasprett að Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sjóður frá Þóreyjarnúpi stóðu uppi sem sigurvegarar með tímann 14.18 sek. sem er virkilega glæsilegur árangur. Í öðru sæti voru það Jóhann Kristinn Ragnarsson á tímanum 14.40. Í þriðja sæti voru það Árni Björn Pálsson á Ögra frá Horni I og fóru þeir á tímanum 14.56. Frábær árangur hjá Top Reiter í dag og sigra þeir liðakeppnina í 150 skeiðinu einnig með 43 stig. Liðsmenn þeirra núna voru Árni Björn, Eyrún Ýr og Konráð Valur. Liðakeppni í 150m skeiði 1 Top Reiter 43 2 Hestvit / Árbakki 37 3 Hrímnir / Hest.is 23 4 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 35 5 Austurkot / Pula 39 6 Ganghestar / Margrétarhof 26 7 Hjarðartún 27 Ganghestar/Margrétarhof halda sinni forystu í liðakeppninni en Top Reiter er nú komið í 3. sætið eftir virkilega góðan árangur í báðum skeiðgreinum dagsins. Staðan í liðakeppninni að loknu 150m skeiði 1 Ganghestar / Margrétarhof 239 2 Hestvit / Árbakki 234.5 3 Top Reiter 215.5 4 Hjarðartún 206 5 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 168 6 Hrímnir / Hest.is 165 7 Austurkot / Pula 156 Glódís fór stigalaust í gegnum þessar tvær greinar en heldur samt sinni forystu inn í síðustu tvær greinarnar sem eru Tölt og Flugskeið. Í topp baráttuna hafa einnig skipað sér þeir Gústaf Ásgeir og Árni Björn í fjórða og fimmta sæti. Mjótt er á munum og því má búast við því að lokakvöldið verður æsispennandi um það hver mun sigra Meistaradeild Líflands 2024! Einstaklingskeppni að loknu 150m skeiði 1 Glódís Rún Sigurðardóttir 34.5 2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 30 3 Jakob Svavar Sigurðsson 30 4 Gústaf Ásgeir Hinriksson 22.75 5 Árni Björn Pálsson 21 NIÐURSTÖÐUR - 150M SKEIÐ
1 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi Hestvit/Árbakki 14,18 2 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Austurkot/Pula 14,40 3 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Top Reiter 14,56 4 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún 14,62 5 Guðmundur Björgvinsson Ögrunn frá Leirulæk Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 14,67 6 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 14,68 7 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 Ganghestar/Margrétarhof 14,74 8 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási Hrímnir/Hest.is 14,84 9 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri Top Reiter 14,89 10 Hanna Rún Ingibergsdóttir Flótti frá Meiri-Tungu 1 Austurkot/Pula 15,07 11 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter15,16 12 Fredrica Fagerlund Snær frá Keldudal Hestvit/Árbakki15,23 13 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu IIHrímnir/Hest.is 15,25 14 Sigurður Vignir Matthíasson Magnea frá StaðartunguGanghestar/Margrétarhof 15,30 15 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri Austurkot/Pula 15,32 16 Glódís Rún Sigurðardóttir Vinátta frá Árgerði Hestvit/Árbakki 15,34 17 Elvar Þormarsson Buska frá Sauðárkróki Hjarðartún 15,55 18 Jakob Svavar Sigurðsson Salka frá Fákshólum Hjarðartún 15,59 19 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Glitra frá Sveinsstöðum Ganghestar/Margrétarhof 15,60 20 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 16,64 21 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is 0,00 Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni sigra Gæðingaskeið í Meistaradeild Líflands 20243/30/2024 Skeiðmót Meistaradeildar Líflands fór nú fram á Brávöllum Selfossi fyrr í dag. Konráð Valur Sveinsson byrjaði á því að tryggja sér sigur í Gæðingaskeiðinu á Kastori frá Garðshorni á Þelamörk með einkunnina 8.24. Keppnin var virkilega spennandi og voru menn og hestar ekki mikið að láta það trufla sig þó svo blési hressilega á brautinni. Í öðru sæti voru Jóhann Ragnarsson og Þórvör frá Lækjarbotnum með einkunnina 8.04 , í því þriðja voru Árni Björn Pálsson og Álfamær frá Prestsbæ með einkunnina 7.92. Hinrik Bragason og Trú frá Árbakka voru í því fjórða með einkunnina 7.83, í fimmta Daníel Gunnarsson og Strákur frá Miðsitju með einkunnina 7.79 og í sjötta sæti Sigurður Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk með 7.68 í einkunn Top Reiter sigraði liðakeppnina í Gæðingaskeiðinu nokkuð örugglega með 54 stig. En liðsfélagarnir Konráð, Árni Björn og Teitur voru allir í topp 10. Liðakeppni í Gæðingaskeið 1 Top Reiter 54 2 Hestvit / Árbakki 31 3 Hrímnir / Hest.is 18 4 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 27 5 Austurkot / Pula 34 6 Ganghestar / Margrétarhof 44 7 Hjarðartún 23 Glódís heldur forystu sinni í einstaklingskeppninni ásamt því sem að lið Ganghesta/Margrétarhofs gerði slíkt hið sama. Einstaklingskeppni að loknu Gæðingaskeið 1 Glódís Rún Sigurðardóttir 34.5 2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 30 3 Jakob Svavar Sigurðsson 30 4 Ásmundur Ernir Snorrason 20 5 Ragnhildur Haraldsdóttir 16.75 Liðakeppnin að loknu Gæðingaskeið 1 Ganghestar / Margrétarhof 213 2 Hestvit / Árbakki 197.5 3 Hjarðartún 179 4 Top Reiter 172.5 5 Hrímnir / Hest.is 142 6 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 133 7 Austurkot / Pula 117 NIÐURSTÖÐUR - GÆÐINGASKEIÐ
1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter 8.21 2 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Austurkot/Pula 8.04 3 Árni Björn Pálsson Álfamær frá Prestsbæ Top Reiter 8.00 4 Hinrik Bragason Trú frá Árbakka Hestvit/Árbakki 7.83 5 Daníel Gunnarsson Strákur frá Miðsitju Ganghestar/Margrétarhof 7.79 6 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7.63 7 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ Ganghestar/Margrétarhof 7.54 8 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II Top Reiter 7.54 9 Hanna Rún Ingibergsdóttir Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk Austurkot/Pula 7.33 10 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Erla frá Feti Ganghestar/Margrétarhof 7.13 11 Viðar Ingólfsson Léttir frá Þóroddsstöðum Hrímnir/Hest.is 7.04 12 Jakob Svavar Sigurðsson Ernir frá Efri-Hrepp Hjarðartún 6.92 13 Elvar Þormarsson Glotta frá Torfabæ Hjarðartún Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 6.75 14 Þorgeir Ólafsson Mjallhvít frá Sumarliðabæ Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 26.63 15 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hamarsey frá Hjallanesi Hestvit/Árbakki 15.21 16 Glódís Rún Sigurðardóttir Sæla frá Hemlu II Ganghestar/Margrétarhof 4.79 17 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla Hrímnir/Hest.is 14.21 18 Hans Þór Hilmarsson Frigg frá Jöklu Hjarðartún 3.5 19 Guðmundur Björgvinsson Alda frá Borgarnesi Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 3.5 20 Bjarni Sveinsson Sturla frá Bræðratungu Uppboðsknapi 3.42 21 Benjamín Sandur Ingólfsson Embla frá Litlu-Brekku Hrímnir/Hest.is 0.71 22 Ólafur Andri Guðmundsson Orka frá Kjarri Austurkot/Pula 0.46 Þá er það orðið ljóst hverjir mæta til leiks á laugardaginn þegar keppt verður í bæði 150m skeiði og Gæðingaskeiði, en dregið var í beinni útsendingu á ALENDIS fyrr í kvöld. Sigurvegararnir í gæðingaskeiði Árni Björn og Álfamær frá Prestsbæ eru skráð til leiks og má búast við miklu af því pari. Sigurvegarinn í 150m skeiði frá því í fyrra mætir með nýjan hest að þessu sinni en Konráð Valur Sveinsson mun mæta með Kastor frá Garðshorni í báðar greinar. Einn uppboðsknapi er skráður í Gæðingaskeið en það er hinn mikli skeiðknapi Bjarni Sveinsson á hestinum Sturlu frá Bærðratungu. Virkilega skemmtileg viðbót við annars glæsilegan hóp. Einn villiköttur fyrir lið Hestvits/Árbakka keppir í Gæðingaskeiði og verður spennandi að sjá hver það verður á laugardaginn!
Keppni hefst kl. 14:00 á Brávöllum, keppnissvæði Sleipnis á Selfossi. Við gerum ráð fyrir því að hitta ykkur flest í brekkunni! Sjáumst! RÁSLISTI 150M SKEIÐ 1 Hans Þór Hilmarsson. Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði. Hjarðartún 2 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Glitra frá Sveinsstöðum Ganghestar / Margrétarhof 3 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I Top Reiter 4 Guðmundur Björgvinsson Ögrunn frá Leirulæk Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 5 Glódís Rún Sigurðardóttir Vinátta frá Árgerði Hestvit / Árbakki 6 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri Austurkot / Pula 7 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Hest.is 8 Jakob Svavar Sigurðsson Salka frá Fákshólum Hjarðartún 9 Sigurður Vignir Matthíasson Magnea frá Staðartungu Ganghestar / Margrétarhof 10 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 11 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter 12 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi Hestvit / Árbakki 13 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Austurkot / Pula 14 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási Hrímnir / Hest.is 15 Elvar Þormarsson Buska frá Sauðárkróki Hjarðartún 16 Daníel Gunnarsson. Kló frá Einhamri 2. Ganghestar / Margrétarhof 17 Þorgeir Ólafsson Rangá frá Torfunesi Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 18 Hanna Rún Ingibergsdóttir Flótti frá Meiri-Tungu 1 Austurkot / Pula 19 Eyrún Ýr Pálsdóttir Sigurrós frá Gauksmýri Top Reiter 20 Fredrica Fagerlund Snær frá Keldudal Hestvit / Árbakki 21 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir / Hest.is RÁSLISTI GÆÐINGASKEIÐ 1 Bjarni Sveinsson Sturla frá Bræðratungu. UPPBOÐSSÆTI 2 Þorgeir Ólafsson. Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 3 Glódís Rún Sigurðardóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit / Árbakki 4 Viðar Ingólfsson Léttir frá Þóroddsstöðum Hrímnir / Hest.is 5 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ Ganghestar / Margrétarhof 6 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Austurkot / Pula 7 Hans Þór Hilmarsson Frigg frá Jöklu Hjarðartún 8 Árni Björn Pálsson Álfamær frá Prestsbæ Top Reiter 9 Daníel Gunnarsson. Strákur frá Miðsitju Ganghestar / Margrétarhof 10 Benjamín Sandur Ingólfsson Embla frá Litlu-Brekku Hrímnir / Hest.is 11 Elvar Þormarsson Glotta frá Torfabæ Hjarðartún 12 Guðmundur Björgvinsson Alda frá Borgarnesi Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 13 Hanna Rún Ingibergsdóttir Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk Austurkot / Pula 14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hamarsey frá Hjallanesi 1 Hestvit / Árbakki 15 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II Top Reiter 16 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Þjóðólfshaga / Sumarliðabæjar 17 Ólafur Andri Guðmundsson Orka frá Kjarri Austurkot / Pula 18 Jakob Svavar Sigurðsson Ernir frá Efri-Hrepp Hjarðartún 19 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Erla frá Feti Ganghestar / Margrétarhof 20 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir / Hest.is 21 VILLIKÖTTUR Hestvit / Árbakki 22 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Top Reiter Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram laugardaginn 30. mars þegar keppt verður í Gæðingaskeiði og 150m skeiði á Brávöllum, keppnissvæði Sleipnis á Selfossi. Keppni hefst kl. 14:00 og hvetjum við alla til að koma á Selfoss til að líta augum á bestu vekringa landsins.
Í fyrra var það Árni Björn Pálsson á Álfamær frá Prestsbæ sem sigraði Gæðingaskeiðið og liðsfélagi hans úr liði Top Reiter Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II sigraði 150m skeiðið. Nú er stóra spurningin hverjir munu standa uppi sem sigurvegarar þetta árið. Það verður spennandi að sjá hvaða hross mæta til leiks en það kemur í ljós á fimmtudaginn 28. mars kl. 19:00 þegar dregið verður í rásröð í beinni útsendingu á Alendis. Við hlökkum til að sjá ykkur í brekkunni á Brávöllum, Selfossi klukkan 14:00! Þeir sem ekki komast þá að sjálfsögðu mælum við með áskrift hjá ALENDIS og fylgist með í beinni útsendingu. Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti bæði í gæðingaskeiði og 150 m skeiði sem haldið verður á Brávöllum, Selfossi laugardaginn 30. mars næstkomandi klukkan 14:00. Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 28. mars kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðsstöðum sigra Gæðingalist í Meistaradeild Líflands 20243/15/2024 Í kvöld fór fram fjórða mót Meistaradeildar Líflands þegar keppt var í Gæðingalist í HorseDay Höllinni á Ingólfshvoli. Fyrir kvöldið máttu áhorfendur búast við glæsilegum sýningum. Fimm villikettir voru skráðir til leiks og ríkti mikil eftirvænting fyrir því hverjir þeir væru. Margir bjuggust við að sjá sigurvegarann frá því í fyrra Olil Amble en svo fór ekki heldur mættu Bergur Jónsson fyrir lið Sumarliðabæjar/Þjóðólfshaga, Arnhildur Helgadóttir fyrir Hrímni/Hest.is, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir fyrir Top Reiter, Elin Holst fyrir Hjarðartún og Þórarinn Eymundsson fyrir Pulu/Austurkot. Það gerði kvöldið vissulega skemmtilegra að fá alla þessa glæsilegu knapa til leiks. Ótrúlegar vandaðar sýningar mátti sjá hjá öllum knöpum í kvöld. Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ leiddu keppnina lengi vel með einkunnina 8,13. Það var svo hún Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á honum Flóvent frá Breiðstöðum sem áttu virkilega glæsileg og vel útfærð sýning og skutu þau sér beint á toppinn og stóðu síðan uppi sem sigurvegarar í Gæðingalist Meistaradeildar Líflands 2024. Í öðru sæti hafnaði Ragnhildur og Úlfur frá Mosfellsbæ, í því þriðja var Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti með 7,80, í fjórða-fimmta sæti höfnuðu Glódís Rún Sigurðardóttir og Breki frá Austurási ásamt Elin Holst og Frama frá Ketilsstöðum með einkunnina 7,73 og í sjötta sæti voru Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði með 7,57. Ekki voru riðin úrslit og stóðu því einkunnir úr forkeppni. Glódís Rún leiðir enn einstaklingskeppnina með 34.5 stig. Í öðru sæti er Jakob Svavar með 30 stig og Aðalheiður Anna í þriðja sætið og er með 29 stig. Liðakeppni kvöldsins fór þannig að lið Margrétarhofs/Ganghesta en þau hlutu 50.5 stig kvöld. Það voru þær Aðalheiður Anna, Ragnhildur og Sara sem kepptu fyrir þeirra hönd. Liðakeppni kvöldsins
1 Ganghestar/Margrétarhof 50.5 stig 2 Hjarðartún 39.5 stig 3 Hestvit/Árbakki 36 stig 4 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 33 stig 5 Hrímnir/Hest.is 30.5 stig 6 Austurkot/Pula 22 stig 7 Top Reiter 19.5 stig Staðan í liðakeppni 1 Ganghestar / Margrétarhof 169 stig 2 Hestvit / Árbakki 166.5 stig 3 Hjarðartún 156 stig 4 Hrímnir / Hest.is 124 stig 5 Top Reiter 118 stig 6 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 106 stig 7. Austurkot / Pula 83 stig Staðan í einstaklingskeppni 1 Glódís Rún Sigurðardóttir 34.5 stig 2 Jakob Svavar Sigurðsson 30 stig 3 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 29 stig 4 Ásmundur Ernir Snorrason 20 stig 5 Ragnhildur Haraldsdóttir 16.75 stig NIÐURSTÖÐUR GÆÐINGALIST 1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir & Flóvent frá Breiðstöðum, Ganghestar / Margrétarhof - 8,27 2 Ragnhildur Haraldsdóttir & Úlfur frá Mosfellsbæ, Ganghestar / Margrétarhof - 8,13 3 Jakob Svavar Sigurðsson & Skarpur frá Kýrholti, Hjarðartún - 7,80 4-5 Glódís Rún Sigurðardóttir & Breki frá Austurási, Hestvit / Árbakki - 7,73 4-5 VILLIKÖTTUR, Hjarðartún, Elin Holst & Frami frá Ketilsstöðum - 7,73 6 Ásmundur Ernir Snorrason & Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is - 7,57 7 Þorgeir Ólafsson & Aþena frá Þjóðólfshaga 1, Þjóðólfshagi / Sumarliðabær - 7,53 8 VILLIKÖTTUR, Hrímnir / Hest.is, Arnhildur Helgadóttir & Vala frá Hjarðartúni - 7,43 9 Fredrica Fagerlund & Stormur frá Yztafelli, Hestvit / Árbakki - 7,43 10 VILLIKÖTTUR, Austurkot / Pula, Þórarinn Eymundsson & Þráinn frá Flagbjarnarholti - 7,40 11 VILLIKÖTTUR, Þjóðólfshagi / Sumarliðabær, Bergur Jónsson & Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum - 7,33 12-13 Teitur Árnason & Hafliði frá Bjarkarey, Top Reiter - 7,20 12-13 Sara Sigurbjörnsdóttir & Fluga frá Oddhóli, Ganghestar / Margrétarhof - 7,20 14 Hanne Smidesang & Tónn frá Hjarðartúni, UPPBOÐSSÆTI - 7,17 15 Ólafur Andri Guðmundsson & Dröfn frá Feti, Austurkot / Pula -7,13 16 Guðmar Þór Pétursson & Sókrates frá Skáney, Þjóðólfshagi/ Sumarliðabær - 7,07 17 VILLIKÖTTUR, Top Reiter, Guðmunda Ellen Sigurðardóttir & Flaumur frá Fákshólum - 6,93 18 Jóhanna Margrét Snorradóttir & Kormákur frá Kvistum, Hestvit / Árbakki - 6,87 19 Eyrún Ýr Pálsdóttir & Hylur frá Flagbjarnarholti, Top Reiter - 6,80 20 Helga Una Björnsdóttir & Hátíð frá Efri-Fitjum, Hjarðartún - 6,50 21 Jón Ársæll Bergmann & Halldóra frá Hólaborg, Austurkot / Pula - 6,37 22 Benjamín Sandur Ingólfsson & Elding frá Hrímnisholti, Hrímnir/Hest.is - 6,20 Við í stjórn meistaradeildar viljum þakka frábært kvöld og óskum knöpum til hamingju með árangurinn. Sjáumst næst eftir 2 vikur 30. mars á Brávöllum á Selfossi þegar keppt verður í Gæðingaskeiði og 150m skeiði. Sjáumst á Selfossi! Stjórn Meistaradeildar Líflands Þá er það orðið ljóst hverjir mæta í Gæðingalistina á föstudaginn í Meistaradeild Líflands 2024. Dregið var í ráslista í beinni útsendingu á ALENDIS fyrr í kvöld þar sem m.a. kom í ljós að 5 villikettir eru að mæta fyrir hönd 5 liða. Það segir okkur að flest lið eru að leita út fyrir sinn hóp til að styrkja sig fyrir kvöldið, en það kemur ekki í ljós hverjir það eru fyrr en þau ríða í braut. Einnig mætir uppboðsknapi en það er hún Hanne Smidesang með Tón frá Hjarðartúni.
Að öðru leyti eru skráðir bæði knapar og hestar sem má búast við miklu af. Glódís Rún sem stendur stigahæst í liðakeppninni ætlar sér eflaust að halda þeirri forystu og Jakob Svavar mun gera atlögu í að ná þeirri forystu - en hann er í öðru sæti í stigakeppninni sem stendur. Annars má ætla að einhverjir munu koma okkur á óvart og má búast við því að villikettirnir komi sterkir til leiks. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Olil Amble, mætti sem villiköttur fyrir lið Hjarðartúns í fyrra og stóð uppi sem sigurvegari og jafnvel leynist hún sem einn af villiköttunum í ár. En það kemur allt í ljós á föstudaginn og vonumst við til að sjá sem flesta í stúkunni á Ingólfshvoli! Keppni hefst kl. 19:00 á föstudaginn í HorseDay höllinni. FRÍTT verður inn í í boði BÍLFANG BÍLASÖLU. Frábærar veitingar og hlaðborð á staðnum fyrir og á meðan keppni stendur og ef þið pantið fyrir fram á hlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti. Allar pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má nálgast á info@ingolfshvoll. Sjáumst í HorseDay höllinni á föstudaginn! RÁSLISTI GÆÐINGALIST 1 Guðmar Þór Pétursson Sókrates frá Skáney Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 2 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti Hrímnir / Hest.is 3 Ólafur Andri Guðmundsson Dröfn frá Feti Austurkot / Pula 4 Helga Una Björnsdóttir Hátíð frá Efri-Fitjum Hjarðartún 5 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof 6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hylur frá Flagbjarnarholti Top Reiter 7 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kormákur frá Kvistum Hestvit / Árbakki 8 Jón Ársæll Bergmann Halldóra frá Hólaborg Austurkot / Pula 9 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Hjarðartún 10 Villiköttur Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 11 Villiköttur Hrímnir / Hest.is 12 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Ganghestar / Margrétarhof 13 Teitur Árnason Hafliði frá Bjarkarey Top Reiter 14 Hanne Smidesang Tónn frá Hjarðartúni Uppboðsknapi 15 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Hestvit / Árbakki 16 Villiköttur Austurkot/Pula 17 Villiköttur Hjarðartún 18 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is 19 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof 20 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 21 Fredrica Fagerlund Stormur frá Yztafelli Hestvit / Árbakki 22 Villiköttur Top Reiter Bílasalan BÍLFANG býður ykkur í HorseDay höllina þegar keppt verður í Gæðingalist í HorseDay höllinni Ingólfshvoli sem hefst stundvíslega kl. 19:00. Í fyrra var það villikötturinn Olil Amble með Glampa frá Ketilsstöðum sem sigruðu eftirminnilega. Í kvöld kemur í ljós hverjir mæta til leiks þegar dregið verður í rásröð hjá ALENDIS kl. 20:00, miðvikudag.
Veisluþjónusta Suðurlands býður upp á hið margrómaða hlaðborð sem færir ykkur einnig frátekið sæti í stúkunni á besta stað - en aðeins ef þið pantið fyrir fram! Tilvalið að mæta með vinum eða fjölskyldu og eiga skemmtilega kvöldstund með bestu gæðingum landsins. Húsið opnar kl. 17:00. Pantanir á hlaðborðið fara fram hér: https://www.dineout.is/.../iceland.../event/meistaradeild… Nánari upplýsingar á info@ingolfshvoll.is Steikarhlaðborð
Hamborgari og aðrar léttar veitingar selt gestum og gangandi. Alendis verður að sjálfsögðu á staðnum og sér til þess að þeir sem ekki komast fái einnig að njóta heima í stofu! Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Gæðingalist sem fer fram föstudaginn 15. mars næstkomandi. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 13. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
29. febrúar síðastliðin þegar keppt var í fimmgangi í Meistaradeild Líflands 2024 var einnig alþjóðlegur dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna. Það var Elísabet Sveinsdóttir, Sleipnisfélgi, sem fór af stað með að hvetja alla hestamenn að glitra fyrir félagið Einstök börn í tilefni dagsins, en félagið stendur henni mjög nærri. Elísabet hafði samband við stjórn Meistaradeildar og óskaði eftir því að fá okkur í lið með sér að vekja athygli á málefninu, bæði með því að hvetja knapa Meistaradeildarinnar til að glitra fyrir Einstök börn í keppninni ásamt því að færa verðlauna knöpum Drekahjarta til styrktar félagsins.
Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu. Við viljum bæði þakka Elísabetu fyrir að vekja athygli á þessu einstaka málefni ásamt þeim knöpum sem sýndu því lit með því að glitra með hestum sínum þetta kvöld. Við hvetjum alla hestamenn til að kynna sér félagið Einstök börn og leggja málefninu lið með því að styrkja það. Þriðja keppniskvöld Meistaradeildar Líflands fór fram í kvöld, 29. febrúar, þegar keppt var í fimmgangi. Margir sterkir hestar voru skráðir til leiks, miklir reynsluboltar innan um nýja og efnilega. Það var ljóst að hestar og knapar mættu undirbúnir til leiks og gáfu allt í sínar sýningar. Einstaka knapar glitruðu fyrir Einstök börn en í dag er Alþjóðlegur dagur sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna og var gaman að sjá knapa leggja góðu málefni lit. Þess má geta að Toyota Selfossi bauð áhorfendum frítt í stúkuna að þessu sinni og þökkum við þeim kærlega fyrir það! Kvöldið hófst með sýningu Þorgeirs Ólafssonar og Aþenu frá Þjóðólfshaga 1 og áttu glæsilega sýningu. Að lokinni forkeppni voru það Ásmundur Ernir Snorrason og Askur frá Holtsmúla 1 sem leiddu en fast á hæla hans komu Teitur og Nóta frá Flugumýri II, Glódís Rún og Snillingur frá Íbishóli, Sigurður Vignir og Hlekkur frá Saurbæ, Árni Björn og Ísbjörg frá Blesastöðum 1A og Eyrún Ýr og Hrannar frá Flugumýri II sem öllu unnu sér keppnisrétt í A-úrslitum. Það mátti búa sig undir spennandi fimmgangs úrslit. Stúkan var þétt setin og mikil stemning var í höllinni. Þegar komið var að loka atriðinu, skeiðinu, leiddu Eyrún Ýr og Hrannar frá Flugumýri II en þau komu síðust inn í úrslitin. Hver glæsispretturinn á fætur öðrum mátti sjá og mikil spenna ríkti hver myndi standa uppi sem sigurvegari. Að lokum voru það reynsluboltarnir Eyrún Ýr og Hrannar frá Flugumýri II og ljóst að enn einn titillinn bætist í hús hjá þessu glæsilega pari, sigur í fimmgangi Meistaradeildar Líflands 2024. Í öðru sæti voru Sigurður Vignir og Hlekkur frá Saurbæ, Glódís Rún og Snillingur frá Íbishóli í því þriðja. Þar á eftir Ásmundur Ernir og Askur frá Holtsmúla I í því fjórða, Teitur og Nóta frá Flugumýri II í því fimmta og loks Árni Björn og Ísbjörg frá Blesastöðum II í því sjötta. Liðakeppni kvöldsins sigraði lið Top Reiters með 54 stig en liðið var með alla sína knapa í úrslitum, þau Teit Árnason, Eyrúnu Ýri Pálsdóttur og Árna Björn Pálsson. Eftir fimmganginn leiðir Glódís Rún einstaklingskeppnina með 28 stig.
Liðakeppni kvöldsins 1. Top Reiter 54 stig 2. Hestvit/Árbakki 33.5 stig 3. Ganghestar/Margrétarhof 32.5 stig 4. Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 32.5 stig 5. Hrímnir/Hest.is 32 stig 6. Austurkot/Pula 25 stig 7. Hjarðartún 21.5 stig Staðan í liðakeppni 1. Hestvit / Árbakki 130.5 stig 2. Ganghestar / Margrétarhof 118.5 stig 3. Hjarðartún 116.5 stig 4. Top Reiter 99 stig 5. Hrímnir / Hest.is 93.5 stig 6. Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 73 stig 7. Austurkot / Pula 61 stig Staðan í einstaklingskeppni 1. Glódís Rún Sigurðardóttir 28 stig 2. Jakob Svavar Sigurðsson 22 stig 3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 17 stig 4. Ásmundur Ernir Snorrason 15 stig 5. Eyrún Ýr Pálsdóttir 12 stig NIÐURSTÖÐUR FIMMGANGUR F1 1 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II Top Reiter 7,83 2 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ Ganghestar / Margrétarhof 7,36 3 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli Hestvit / Árbakki 7,31 4 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir / Hest.is 7,29 5 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II Top Reiter 7,19 6 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Top Reiter 7,14 7 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 6,77 8 Ólafur Andri Guðmundsson Móeiður frá Feti Austurkot / Pula 6,70 9-12 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 6,67 9-12 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Hjarðartún 6,67 9-12 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal Ganghestar / Margrétarhof 6,67 9-12 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hringjari frá Efri-Fitjum Hestvit / Árbakki 6,67 13 Jóhann Kristinn Ragnarsson Spyrnir frá Bárubæ Austurkot / Pula 6,60 14 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrímnir / Hest.is 6,57 15-17 Sigurður Sigurðarson Mánadís frá Litla-Dal Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 6,50 15-17 Jakob Svavar Sigurðsson Gleði frá Hólaborg Hjarðartún 6,50 15-17 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Hrímnir / Hest.is 6,50 18 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum Hjarðartún 6,43 19 Pierre Sandsten Hoyos Heba frá Íbishóli Hestvit / Árbakki 6,40 20 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti Austurkot / Pula 6,13 21 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kamma frá Margrétarhofi Ganghestar / Margrétarhof 5,97 22 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum UPPBOÐSSÆTI 5,57 Nú er það ljóst hverjir mæta í fimmganginn á fimmtudaginn í Meistaradeild Líflands 2024. Dregið var í ráslista í beinni útsendingu á ALENDIS fyrr í kvöld. Það er gaman að rýna yfir hestakostinn sem mun mæta til leiks en þar á meðal er Landsmótssigurvegarinn Hrannar frá Flugumýri II með knapa sínum Eyrúnu Ýr. Gaman að segja frá því að tveir synir hans munu einnig mæta til leiks, þeir Steinar frá Stíghúsi ásamt Flosa Ólafssyni og Eldur frá Mið-Fossum ásamt Viðari Ingólfssyni. Einn uppboðsknapi er skráður til leiks en það er Konráð Valur Sveinsson á Seið frá Hólum. Af þeim hestum sem skráðir eru til leiks eru tveir sem voru í A úrslitum, þeir Eldur frá Mið-Fossum með Viðari og Nóta frá Flugumýri II og Teitur. Þrír efstu hestarnir frá því í fyrra fóru fyrir Íslands hönd á HM í Hollandi í sumar og urðu tveir þeirra heimsmeistarar, Salka frá Efri-Brú með Glódísi og Flóki frá Oddhóli með Söru. Það voru einmitt Sara og Flóki sem sigruðu eftir harða baráttu í A-úrslitum í fimmgangi Meistaradeildar Líflands 2023.
Keppni hefst kl. 19:00 á fimmtudaginn í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. FRÍTT verður inn í höllina í boði TOYOTA SELFOSSI. Frábærar veitingar og hlaðborð á staðnum fyrir og á meðan keppni stendur og ef þið pantið fyrir fram á hlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti. Allar pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má nálgast á info@ingolfshvoll. RÁSLISTI FIMMGANGUR Knapi Hestur Lið 1 Þorgeir Ólafsson Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 2 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum Hjarðartún 3 Viðar Ingólfsson Eldur frá Mið-Fossum Hrímnir / Hest.is 4 Páll Bragi Hólmarsson Snjall frá Austurkoti Austurkot / Pula 5 Glódís Rún Sigurðardóttir Snillingur frá Íbishóli Hestvit / Árbakki 6 Ragnhildur Haraldsdóttir Ísdís frá Árdal Ganghestar / Margrétarhof 7 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Top Reiter 8 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir / Hest.is 9 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Hjarðartún 10 Pierre Sandsten Hoyos Heba frá Íbishóli Hestvit / Árbakki 11 Sigurður Vignir Matthíasson Hlekkur frá Saurbæ Ganghestar / Margrétarhof 12 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 13 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hrannar frá Flugumýri II Top Reiter 14 Ólafur Andri Guðmundsson Móeiður frá Feti Austurkot / Pula 15 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrímnir / Hest.is 16 Jakob Svavar Sigurðsson Gleði frá Hólaborg Hjarðartún 17 Sigurður Sigurðarson Mánadís frá Litla-Dal Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 18 Teitur Árnason Nóta frá Flugumýri II Top Reiter 19 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hringjari frá Efri-Fitjum Hestvit / Árbakki 20 Jóhann Kristinn Ragnarsson Spyrnir frá Bárubæ Austurkot / Pula 21 Konráð Valur Sveinsson Seiður frá Hólum UPPBOÐSSÆTI 22 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kamma frá Margrétarhofi Ganghestar / Margrétarhof Toyota Selfossi býður ykkur í HorseDay höllina þegar keppt verður í Fimmgangi í HorseDay höllinni Ingólfshvoli sem hefst stundvíslega kl. 19:00. Í fyrra voru það þau Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli sem sigruðu. Í kvöld kemur í ljós hverjir mæta til leiks þegar dregið verður í rásröð hjá ALENDIS kl. 20:00, þriðjudag.
Veisluþjónusta Suðurlands býður upp á hið margrómaða hlaðborð sem færir ykkur einnig frátekið sæti í stúkunni á besta stað - en aðeins ef þið pantið fyrir fram! Tilvalið að mæta með vinum eða fjölskyldu og eiga skemmtilega kvöldstund með bestu fimmgöngurum landsins. Húsið opnar kl. 17:00. Pantanir á hlaðborðið fara fram hér: https://www.dineout.is/.../iceland.../event/meistaradeild... Nánari upplýsingar á info@ingolfshvoll.is Steikarhlaðborð
Hamborgari, panini og léttar veitingar selt gestum og gangandi. Alendis verður að sjálfsögðu á staðnum og sér til þess að þeir sem ekki komast fái einnig að njóta heima í stofu! Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Fimmgangi sem fer fram fimmtudaginn 29. febrúar næstkomandi. Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 27. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
Þá er keppni í slaktaumatölti lokið í Meistaradeild Líflands 2024. Það er óhætt að segja að keppnin hafi verið virkilega spennandi, frábærar sýningar sáust og var keppnin hörð allt til enda. Horses of Iceland bauð gestum í stúkuna og var Veisluþjónusta Suðurlands á sínum stað í veislusal með glæsilegt hlaðborð sem knapar og aðrir gestir gæddu sér á. Tveir knapar keyptu sér uppboðssæti fyrir kvöldið ásamt því að eitt lið tefldi fram villiketti sem gerði kvöldið enn skemmtilegra. Það voru þau Þorgeir Ólafsson og Auðlind frá Þjórsárbakka sem riðu á vaðið og hófu veisluna. Eftir forkeppni voru það Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum og Glódís Rún og Breki frá Austurási sem leiddu með sömu einkunn, en þar á eftir voru Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði, Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum, Helga Una og Ósk frá Stað og síðust að næla sér sæti í A úrslitum voru Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli. Að lokinni forkeppni var ljóst að úrslitin yrðu mjög spennandi þar sem stutt var á milli knapa og tveir knapar stæðu efstir og því með öllu óljóst hver myndi standa uppi sem sigurvegari. Eftir frjálsu ferðina á tölti voru það Jakob og Hrefna frá Fákshólum sem leiddu nokkuð örugglega og þeirri forystu héldu þau eftir hæga töltið. Fyrir slaka tauminn voru Ásmundur og Glódís ekki langt undan. Það mátti heyra saumnál detta í höllinni á meðan slaki taumurinn fór fram, spennan var slík. En það varð svo ljóst eftir frábæra sýningu á slaka taumnum að Glódís Rún og Breki frá Austurási stóðu uppi sem sigurvegarar í Slaktaumatölti Meistaradeildar Líflands 2024 með einkunnina 8.04. Rétt á hæla hennar komu Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum með einkunnina 8.00. Þriðju voru Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði með 7.88. Í fjórða sæti voru sigurvegarar frá því 2023, Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum með 7.77, Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli í því fimmta með 7.63 og í því sjötta Helga Una og Ósk frá Stað með 7.25. Liðakeppni kvöldsins sigraði lið Hjarðartúns með 47.5 stig en liðið var með tvo knapa í úrslitum, þau Jakob Svavar Sigurðsson og Helgu Unu Björnsdóttur. Elvar Þormarsson keppti einnig fyrir lið Hjarðartúns og voru þeir í 12 sæti eftir frumraun sína í keppni í slaktaumatölti. Jakob Svavar leiðir enn einstaklingskeppnina með 22 stig. Staðan í liðakeppni 1. Hestvit / Árbakki 97 stig 2. Hjarðartún 95 stig 3. Ganghestar / Margrétarhof 86 stig 4. Hrímnir / Hest.is 61.5 stig 5. Top Reiter 45 stig 6. Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 40.5 stig 7. Austurkot / Pula 36 stig Staðan í einstaklingskeppni 1. Jakob Svavar Sigurðsson 22 stig 2. Glódís Rún Sigurðardóttir 20 stig 3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 17 stig 4. Gústaf Ásgeir Hinriksson 10 stig 5. Helga Una Björnsdóttir 10 stig Við í stjórn meistaradeildar viljum þakka fyrir kvöldið og óskum knöpum til hamingju með árangurinn. Sjáumst næst 29. febrúar í HorseDay höllinni Ingólfshvoli þegar keppt verður í fimmgangi. Í fyrra voru það Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli, síðar heimsmeistarar, sem sigruðu. Það er því ljóst að Flóki og Sara eru ekki að mæta þannig það verður spennandi að sjá hverjir sigri fimmganginn í Meistaradeild Líflands 2024 Sjáumst í HorseDay höllinni eftir þrjár vikur! Niðurstöður
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Hestvit/Árbakki 8,04 2 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún 8,00 3 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir/Hest.is 7,88 4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Margrétarhof/Ganghestar 7,71 5 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7,62 6 Helga Una Björnsdóttir Ósk frá Stað Hjarðartún 7,25 7 Teitur Árnason Úlfur frá Hrafnagili Top Reiter 7,57 8 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sesar frá Rauðalæk Hestvit/Árbakki 7,53 9 Viðar Ingólfsson Þormar frá Neðri-Hrepp Hrímnir/Hest.is 7,40 10 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni Margrétarhof/Ganghestar 7,33 11 Arnar Bjarki Sigurðarson Magni frá Ríp Uppboðssæti 7,30 12-13 Sara Sigurbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá Margrétarhof/Hest.is 7,27 12-13 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Hjarðartún 7,27 14 Rakel Sigurhansdóttir Slæða frá Traðarholti Uppboðssæti 7,13 15 Pierre Sandsten Hoyos Tristan frá Stekkhólum Hestvit/Árbakki 7,10 16 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrímnir/Hest.is 6,97 17 Ólafur Andri Guðmundsson Draumur frá Feti Austurkot/Pula 6,87 18 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Austurkot/Pula 6,83 19 Jón Ársæll Bergmann Grímur frá Skógarási Austurkot/Pula 6,47 20 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Top Reiter 6,33 21 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 5,97 22 Sigurður Sigurðarson Amadeus frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 5,57 23 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hylur frá Flagbjarnarholti Top Reiter 0,00
Sjáumst í HorseDay Höllinni á fimmtudaginn eða á beinu útsendingunni á Alendis.
Nú er orðið ljóst hverjir mæta í slaktaumatölt á fimmtudaginn í Meistaradeild Líflands 2024. Dregið var í ráslista í beinni útsendingu á ALENDIS fyrr í kvöld. Við megum búa okkur undir stór glæsilega og spennandi keppni með virkilega flottum hrossum og knöpum sem ýmist eru með mikla keppnisreynslu eða jafnvel að þreyta verkefnið í fyrsta sinn. Sigurvegararnir frá því í fyrra þau Aðalheiður og Flóvent eru skráð til leiks ásamt sigurvegurum úr fjórganginum, þeim Jakobi og Skarpi frá Kýrholti. Einnig munum við sjá tvo uppboðsknapa ásamt villiketti í liði Ganghesta/Margrétarhofs. Í uppboðssætin mæta Arnar Bjarki og Magni frá Ríp ásamt Rakel Sigurhansdóttir á Slæðu frá Traðarholti. Villikötturinn kemur svo í ljós á keppninni sjálfri.
Keppni hefst kl. 19:00 á fimmtudaginn í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. FRÍTT verður inn í höllina í boði Horses of Iceland. Frábærar veitingar og hlaðborð á staðnum fyrir og á meðan keppni stendur og ef þið pantið fyrir fram á hlaðborðið fylgir frátekið sæti með í kaupbæti. Allar pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má nálgast á info@ingolfshvoll. Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið 1 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka Loki frá Selfossi Gola frá Þjórsárbakka Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 2 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Spuni frá Vesturkoti Blábjörg frá Torfastöðum Top Reiter 3 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Arður frá Brautarholti Ópera frá Dvergsstöðum Austurkot / Pula 4 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sesar frá Rauðalæk Straumur frá Feti Snúra frá Rauðalæk Hestvit / Árbakki 5 Helga Una Björnsdóttir Ósk frá Stað Skýr frá Skálakoti Ófelía frá Holtsmúla 1 Hjarðartún 6 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Pan frá Breiðstöðum Dúkka frá Úlfsstöðum Ganghestar / Margrétarhof 7 Viðar Ingólfsson Þormar frá Neðri-Hrepp Konsert frá Hofi Auður frá Neðri-Hrepp Hrímnir / Hest.is 8 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Mjölnir frá Hlemmiskeiði 3 Orka frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 9 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hraunar frá Hrosshaga Gloría frá Skúfslæk Hjarðartún 10 Arnar Bjarki Sigurðarson Magni frá Ríp Vilmundur frá Feti Myrra frá Ríp Uppboðssæti 11 Teitur Árnason Úlfur frá Hrafnagili Auður frá Lundum II Rauðhetta frá Holti 2 Top Reiter 12 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Loki frá Selfossi Sunna frá Sumarliðabæ 2 Hrímnir / Hest.is 13 Pierre Sandsten Hoyos Tristan frá Stekkhólum Jökull frá Rauðalæk Tilviljun frá Árbæ Hestvit / Árbakki 14 Ólafur Andri Guðmundsson Draumur frá Feti Arion frá Eystra-Fróðholti Jónína frá Feti Austurkot / Pula 15 Rakel Sigurhansdóttir Slæða frá Traðarholti Loki frá Selfossi Glæða frá Þjóðólfshaga 1 Uppboðssæti 16 VILLIKÖTTUR Ganghestar / Margrétarhof 17 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Arion frá Eystra-Fróðholti Diljá frá Hveragerði Hjarðartún 18 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrannar frá Flugumýri II Álöf frá Ketilsstöðum Hrímnir / Hest.is 19 Sara Sigurbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá Ómur frá Kvistum Snæja frá Garðsá Ganghestar / Margrétarhof 20 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hylur frá Flagbjarnarholti Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Rás frá Ragnheiðarstöðum Top Reiter 21 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Ómur frá Kvistum Stolt frá Selfossi Hestvit / Árbakki 22 Sigurður Sigurðarson Amadeus frá Þjóðólfshaga 1 Stáli frá Kjarri Æsa frá Flekkudal Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 23 Jón Ársæll Bergmann Grímur frá Skógarási Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Lind frá Ármóti Austurkot / Pula Keppt verður í Slaktaumatölti í HorseDay höllinni Ingólfshvoli fimmtudaginn 8. febrúar næst komandi og hefst keppni stundvíslega kl. 19:00. Slaktaumatölt í Meistaradeildinni hefur verið vaxandi grein og er keppnin orðin gríðarlega sterk þar sem margir af bestu tölturum landsins etja kappi. Í fyrra voru það þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum sem sigruðu og má búast við því að þau stefni á að endurtaka leikinn. En það kemur í ljós á þriðjudaginn hverjir keppa um titilinn þegar dregið verður í rásröð í beinni útsendingu á ALENDIS kl. 20:00.
Að þessu sinni ætlar Horses of Iceland að bjóða í gestum frítt í HorseDay höllina. Veisluþjónusta Suðurlands verður á staðnum með glæsilegt hlaðborð ásamt öðrum veitingum og sé pantað fyrir fram á hlaðborðið fylgir í kaupbæti frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantanir fara fram HÉR en nánari upplýsingar má senda á info@ingolfshvoll.is - húsið opnar 17:30! Í fyrra voru það þau Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Það verður spennandi að sjá hvort þau munu mæta aftur til leiks! Það er veisla fram undan! Bestu knapar landsins munu berjast um titilinn um það hver sigri Meistaradeild Líflands 2024. Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í slaktaumatölti sem fer fram fimmtudaginn 8. febrúar næstkomandi. Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 5. febrúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi getur keypt sér keppnisrétt, ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Hægt er að nálgast reglurnar hér -> https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html
|
|