MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Glódís Rún og Breki frá Austurási sigra slaktaumatölt Meistaradeildar Líflands 2024!

8/2/2024

Comments

 
Picture
Þá er keppni í slaktaumatölti lokið í Meistaradeild Líflands 2024. Það er óhætt að segja að keppnin hafi verið virkilega spennandi, frábærar sýningar sáust og var keppnin hörð allt til enda. Horses of Iceland bauð gestum í stúkuna og var Veisluþjónusta Suðurlands á sínum stað í veislusal með glæsilegt hlaðborð sem knapar og aðrir gestir gæddu sér á. 
​

Tveir knapar keyptu sér uppboðssæti fyrir kvöldið ásamt því að eitt lið tefldi fram villiketti sem gerði kvöldið enn skemmtilegra. Það voru þau Þorgeir Ólafsson og Auðlind frá Þjórsárbakka sem riðu á vaðið og hófu veisluna. Eftir forkeppni voru það Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum og Glódís Rún og Breki frá Austurási sem leiddu með sömu einkunn, en þar á eftir voru Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði, Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum, Helga Una og Ósk frá Stað og síðust að næla sér sæti í A úrslitum voru Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli.
​

Að lokinni forkeppni var ljóst að úrslitin yrðu mjög spennandi þar sem stutt var á milli knapa og tveir knapar stæðu efstir og því með öllu óljóst hver myndi standa uppi sem sigurvegari. Eftir frjálsu ferðina á tölti voru það Jakob og Hrefna frá Fákshólum sem leiddu nokkuð örugglega og þeirri forystu héldu þau eftir hæga töltið. Fyrir slaka tauminn voru Ásmundur og Glódís ekki langt undan. Það mátti heyra saumnál detta í höllinni á meðan slaki taumurinn fór fram, spennan var slík. En það varð svo ljóst eftir frábæra sýningu á slaka taumnum að Glódís Rún og Breki frá Austurási stóðu uppi sem sigurvegarar í Slaktaumatölti Meistaradeildar Líflands 2024 með einkunnina 8.04. Rétt á hæla hennar komu Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum með einkunnina 8.00. Þriðju voru Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði með 7.88. Í fjórða sæti voru sigurvegarar frá því 2023, Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum með 7.77, Bjarni Jónasson og Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli í því fimmta með 7.63 og í því sjötta Helga Una og Ósk frá Stað með 7.25.
Picture
Liðakeppni kvöldsins sigraði lið Hjarðartúns með 47.5 stig en liðið var með tvo knapa í úrslitum, þau Jakob Svavar Sigurðsson og Helgu Unu Björnsdóttur. Elvar Þormarsson keppti einnig fyrir lið Hjarðartúns og voru þeir í 12 sæti eftir frumraun sína í keppni í slaktaumatölti. Jakob Svavar leiðir enn einstaklingskeppnina með 22 stig.

Staðan í liðakeppni
1. Hestvit / Árbakki 97 stig
2. Hjarðartún 95 stig
3. Ganghestar / Margrétarhof 86 stig
4. Hrímnir / Hest.is 61.5 stig
5. Top Reiter 45 stig
6. Þjóðólfshagi / Sumarliðabær 40.5 stig
​7. Austurkot / Pula 36 stig

Staðan í einstaklingskeppni
1. Jakob Svavar Sigurðsson 22 stig
2. Glódís Rún Sigurðardóttir 20 stig
3. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 17 stig

4. Gústaf Ásgeir Hinriksson 10 stig
5. Helga Una Björnsdóttir 10 stig
Picture
Við í stjórn meistaradeildar viljum þakka fyrir kvöldið og óskum knöpum til hamingju með árangurinn. Sjáumst næst 29. febrúar í HorseDay höllinni Ingólfshvoli þegar keppt verður í fimmgangi. Í fyrra voru það Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli, síðar heimsmeistarar, sem sigruðu. Það er því ljóst að Flóki  og Sara eru ekki að mæta þannig það verður spennandi að sjá hverjir sigri fimmganginn í Meistaradeild Líflands 2024
​Sjáumst í HorseDay höllinni eftir þrjár vikur!
Niðurstöður
1 Glódís Rún Sigurðardóttir Breki frá Austurási Hestvit/Árbakki 8,04
2 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún 8,00
3 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir/Hest.is 7,88
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Margrétarhof/Ganghestar 7,71
5 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7,62
6 Helga Una Björnsdóttir Ósk frá Stað Hjarðartún 7,25
7 Teitur Árnason Úlfur frá Hrafnagili Top Reiter 7,57
8 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sesar frá Rauðalæk Hestvit/Árbakki 7,53
9 Viðar Ingólfsson Þormar frá Neðri-Hrepp Hrímnir/Hest.is 7,40
10 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni Margrétarhof/Ganghestar 7,33
11 Arnar Bjarki Sigurðarson Magni frá Ríp Uppboðssæti 7,30
12-13 Sara Sigurbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá Margrétarhof/Hest.is 7,27
12-13 Elvar Þormarsson Djáknar frá Selfossi Hjarðartún 7,27
14 Rakel Sigurhansdóttir Slæða frá Traðarholti Uppboðssæti 7,13
15 Pierre Sandsten Hoyos Tristan frá Stekkhólum Hestvit/Árbakki 7,10
16 Flosi Ólafsson Steinar frá Stíghúsi Hrímnir/Hest.is 6,97
17 Ólafur Andri Guðmundsson Draumur frá Feti Austurkot/Pula 6,87
18 Páll Bragi Hólmarsson Vísir frá Kagaðarhóli Austurkot/Pula 6,83
19 Jón Ársæll Bergmann Grímur frá Skógarási Austurkot/Pula 6,47
20 Árni Björn Pálsson Ísbjörg frá Blesastöðum 1A Top Reiter 6,33
21 Þorgeir Ólafsson Auðlind frá Þjórsárbakka Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 5,97
22 Sigurður Sigurðarson Amadeus frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 5,57
23 Eyrún Ýr Pálsdóttir Hylur frá Flagbjarnarholti Top Reiter 0,00
Picture
Comments
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Fet/Pula
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Sumarliðabær
    • Top Reiter
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule