|
Skeiðmót Meistaradeildar Líflands var haldið í ekta íslensku vetrarveðri í dag. Þurfti að fresta mótinu um hálftíma á meðan brautin var undirbúin. Keppni hófst 13:30 og þótt veðrið væri ekki alveg ákjósanlegt í upphafi virtist það ekki hafa nein áhrif á knapa né hesta. Frábærar sýningar og glæsilegir tímar voru settir, og mögulega besti tími í 150m skeiði sem hefur verið farinn í 150m skeiði Meistaradeildarinnar. Keppni hófst á gæðingaskeiði og fóru leikar þannig að Árni Björn rétt marði sigur með 0.04 kommum á hryssunni Elmu frá Staðarhofi. Þau hlutu einkunnina 8.58 en rétt á hæla þeirra með einkunnina 8.54 voru Konráð Valur og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Í þriðja sæti voru Gústaf Ásgeir og Piltur frá Sturlureykjum 2 með einkunnina. 7.54. Það var því lið Topreiter/Sumarliðabæjar sem sigruðu liðakeppnina í Gæðingaskeiði með 46 stig, með tvo af sínum liðsfélögum í fyrsta og öðru sæti. Í 150m kappreiðum skiptu þeir liðsfélagar í liði Topreiter/Sumarliðabæjar á sætum en það var Konráð Valur og Kastor sem sigruðu nokkuð örugglega á virkilega glæsilegum tíma, 13.94 sek. Árni Björn og Ögri frá Horni voru í öðru sæti á 14.47sek og Þorgeir Ólafsson og Grunur frá Lækjarbrekku 2 sem höfnuðu í því þriðja. Það kom því ekki á óvart að lið Topreiter/Sumarliðabæjar sigraði með 46 stigum og jafnframt þriðju liðakeppnina í röð. Lið Topreiter/Sumarliðabæjar er núna með 218 stig, þegar tvær keppnir eru eftir, og standa efst, hálfu stigi á undan Hjarðartúni sem er með 217.5 stig. Í þriðja sæti eru IB bílar með 154 stig. Í einstaklingskeppninni er Ásmundur Ernir efstur með 38.5 stig, Aðalheiður Anna með 37 stig og Árni Björn í þriðja með 35 stig. Þar á eftir koma Jakob, Jón Ársæll og Þorgeir. HÉR má svo sjá nánari stöðu í stigakeppninni: Það er því ljóst að stutt er á munum bæði í liða- og einstaklingskeppni og munu úrslitin eflaust ráðast á síðasta spretti í gegnum höllina næstkomandi föstudag. En þá verður keppt í Tölti T1 og flugskeiði í gegnum höllina. Við hlökkum til að hitta ykkur í höllinni! Gæðingaskeið PP1 niðurstöður Sæti Knapi Hross Lið Einkunn 1 Árni Björn Pálsson Elma frá Staðarhofi TopReiter/Sumarliðabær 8,58 2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk TopReiter/Sumarliðabær 8,54 3 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit/Árbakki 7,58 4 Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál Ganghestar/Margrétarhof 7,46 5 Jón Ársæll Bergmann Gljásteinn frá Íbishóli IB bílar 7,21 6 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir/Hest.is 7,17 7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar/Margrétarhof 7,13 8 Elvar Þormarsson Ýr frá Selfossi Hjarðartún 7,13 9 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 TopReiter/Sumarliðabær 7,13 10 Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ IB bílar 7,08 11 Hans Þór Hilmarsson Penni frá Eystra-Fróðholti Hjarðartún 7,08 12 Jóhanna Margrét Snorradóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit/Árbakki 6,92 13 Hinrik Bragason Eik frá Efri-Rauðalæk Hestvit/Árbakki 6,63 14 Viðar Ingólfsson Lína frá Þjóðólfshaga 1 Hrímnir/Hest.is 6,50 15 Jakob Svavar Sigurðsson Bresi frá Efri-Hrepp Hjarðartún 6,42 16 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Gammur frá Efri-Þverá Ganghestar/Margrétarhof 4,71 17 Jóhann Kristinn Ragnarsson Þórvör frá Lækjarbotnum Uppboðssæti 3,88 18 Sigurður Sigurðarson Glettir frá Þorkelshóli 2 Hrímnir/Hest.is 3,79 19 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 IB bílar 1,00 Skeið 150m. niðurstöður 1 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk TopReiter/Sumarliðabær 13,94 2 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I TopReiter/Sumarliðabær 14,47 3 Þorgeir Ólafsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 IB bílar 14,74 4 Helga Una Björnsdóttir Salka frá Fákshólum Hjarðartún 14,88 5 Hinrik Bragason Klókur frá Dallandi Hestvit/Árbakki 15,02 6 Hans Þór Hilmarsson Bína frá Vatnsholti Hjarðartún 15,10 7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Hörpurós frá Helgatúni Ganghestar/Margrétarhof 15,30 8 Teitur Árnason Hátíð frá Sumarliðabæ 2 TopReiter/Sumarliðabær 15,34 9-10 Flosi Ólafsson Orka frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is 15,49 9-10 Benjamín Sandur Ingólfsson Gullborg frá Læk IB bílar 15,49 11 Daníel Gunnarsson Sigur frá Bessastöðum Uppboðssæti 15,83 12 Sigurður Vignir Matthíasson Gnúpur frá Dallandi Ganghestar/Margrétarhof 15,98 13 Jóhanna Margrét Snorradóttir Sæla frá Hemlu II Hestvit/Árbakki 16,00 14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Piltur frá Sturlureykjum 2 Hestvit/Árbakki 16,07 15 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Alviðra frá Kagaðarhóli Ganghestar/Margrétarhof 16,08 16 Jakob Svavar Sigurðsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Hjarðartún 16,35 17 Jón Ársæll Bergmann Otra frá Fornhaga II IB bílar 16,38 18 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir/Hest.is 16,69 19 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk Hrímnir/Hest.is 0,00 Allir sigrar dagsins fóru til liðs Topreiter/Sumarliðabæjar. Til hamingju!
|
|