|
Keppt var í Gæðingalist í Meistaradeild Líflands sl. föstudag, 6. mars. Það var ljóst fyrir kvöldið að áhorfendur ættu von á veislu en ráslistinn prýddi marga spennandi hesta og fyrrum sigurvegara í greininni. Það fór svo að Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðstöðum stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 8.50 eftir stórglæsilega sýningu. Í öðru sæti var Jakob Svavar og Hrefna frá Fákshólum með 8.37 og í því þriðja var Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhjáleigu með 8.30. Jakob Svavar, Aðalheiður Anna og Ásmundur Ernir ánægð með úrslit kvöldsins. Hér eru þeir knapar sem voru í topp 10 og fengu stig í einstaklingskeppni kvöldsins. Að þessu sinni var það lið Topreiter/Sumarliðabæjar sem sigraði liðakeppnina með 40 stig. Liðið er nú í öðru sæti í liðakeppninni með 126 stig á eftir Hjarðartúni sem er með 162 stig. Í þriðja sæti er lið Hrímnis/hest.is með 109 stig. Það er mjótt á munum í einstaklingskeppninni en það er Ásmundur Ernir sem leiðir með 33.5 stig, Aðalheiður Anna í öðru með 30 stig og Jakob Svavar í þriðja með 29 stig. Sundurliðun stiga má sjá HÉR. Nú eru fjórar greinar búnar og má segja að núna aðeins hálfleikur í Meistaradeild Líflands. Fjórar greinar eru eftir þó viðburðirnir séu aðeins tveir. En næst verður keppt á Selfossi, 21. mars, í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Viku seinna eða 27. mars verður svo lokakvöld Meistaradeildar Líflands þegar keppt verður í Tölti og flugskeiði í gegnum höllina. Nóg eftir af stigum í pottinum og margt getur breyst á lokametrunum. ÚRSLIT
1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar / Margrétarhof 8.5 2 Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún 8.37 3 Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir / Hest.is 8.3 4 Eyrún Ýr Pálsdóttir Top Reiter / Sumarliðabær 8 5-6 Árni Björn Pálsson Top Reiter / Sumarliðabær 7.97 5-6 Þorgeir Ólafsson Ib bílar 7.97 7-8 Teitur Árnason Top Reiter / Sumarliðabær 7.83 7-8 Arnhildur Helgadóttir Hjarðartún 7.83 9 Jón Ársæll Bergmann Ib bílar 7.67 10 Glódís Rún Sigurðardóttir Hestvit / Árbakki 7.47 11 Jóhanna Margrét Snorradóttir Hestvit / Árbakki 7.4 12 Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún 7.37 13 Ragnhildur Haraldsdóttir Ganghestar / Margrétarhof 7.33 14 Brynja Kristinsdóttir Hrímnir / Hest.is 7.27 15 Sigurður Sigurðarson Hrímnir / Hest.is 6.97 16 Bergur Jónsson Ib bílar 6.9 17 Pierre Sandsten Hoyos Hestvit / Árbakki 6.8 18 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Ganghestar / Margrétarhof 6.63 Við sjáumst næst á Selfossi, 21. mars, þegar keppt verður í skeiðgreinum! Myndir: Carolin Giese |
|