MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Úrslit: Fjórgangur

28/1/2026

 
Picture
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum eru heldur betur búin að stimpla sig inn í sögubækurnar, því þau sigruðu fjórganginn í Meistaradeildinni annað árið í röð – og tryggðu sér þar með sinn þriðja sigur í  deildinni í þessari grein. Alvöru afrek hjá þessu öfluga pari.
Keppnin var hörð og spennan mikil í A-úrslitunum. Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði sóttu fast og enduðu í öðru sæti. Nýtt og eftirtektarvert par, þau Glódís Rún Sigurðardóttir og Logi frá Staðartungu, vöktu mikla athygli og enduðu í þriðja sæti. Þar á eftir komu Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti og þau Guðmunda Ellen Sigurðardóttir og Flaumur frá Fákshólum 


Picture
A úrslit
1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 8,10
2 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 7,73
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Logi frá Staðartungu 7,67
4 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,63
5 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,50
Picture
B-úrslit voru haldin í fyrsta sinn í langan tíma í Meistaradeild Líflands og vöktu þau mikla lukku. Keppnin var afar spennandi og var gaman að sjá knapa og hesta fá tækifæri til að spreyta sig í úrslitum og stemningin í höllinni bar þess skýr merki.

Þau Arnhildur Helgadóttir og Fákur frá Kaldbak leiddu B úrslitin að lokinni forkeppni eftir glæsilega sýningu, en þau riðu jafnframt fyrst í braut. En það voru þau Teitur Árnason og Auðlind frá Þjórsárbakka sem stóðu uppi sem sigurvegarar B-úrslitanna með einkunnina eftir sterka og örugga sýningu. Í sjöunda sæti urðu Helga Una Björnsdóttir og Björt frá Kráku. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Drangur frá Steinnesi deildu áttunda til níunda sætinu með Jóhönnu Margréti Snorradóttur og Bút frá Litla-Dal. Arnhildur Helgadóttir og Fákur frá Kaldbak enduðu í tíunda sæti.

B-úrslitin voru án efa kærkomin viðbót við keppnina og sýndu glögglega hversu mikil breidd og gæði eru í fjórgangskeppni landsins.

B úrslit
6 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka 7,47
7 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 7,27
8-9 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,23
8-9 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal 7,23
10 Arnhildur Helgadóttir Fákur frá Kaldbak 7,07
Picture
Liðakeppnina vann lið Hjarðartúns en allir knapar liðsins voru í úrslitum. Jakob Svavar Sigurðsson á Skarpi frá Kýrholti varð fjórði í A úrslitum, Helga Una Björnsdóttir á Björt frá Kráku í sjöunda sæti og Arnhildur Helgadóttir tíunda á Fáki frá Kaldbak.
​

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur við fyrsta móti deildarinnar þetta árið og þökkum Toyota á Selfossi fyrir að bjóða áhorfendum frítt í stúkuna. Við minnum svo á næsta mót Meistaradeildar Líflands verður fimmtudaginn 5. febrúar en þá verður keppt í slaktaumatölti.


Forkeppni
1 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 8,00
2 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 7,70
3 Glódís Rún Sigurðardóttir Logi frá Staðartungu 7,67
4 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti 7,53
5 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,37
6 Arnhildur Helgadóttir Fákur frá Kaldbak 7,33
7 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,27
8-9 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 7,23
8-9 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka 7,23
10 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal 7,20
11-12 Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi 7,07
11-12 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti 7,07
13 Árni Björn Pálsson Orka frá Hvolsvelli 7,00
14 Pierre Sandsten Hoyos Kinnungur frá Torfunesi 6,97
15 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum 6,90
16 Flosi Ólafsson Suðri frá Varmalandi 6,80
17-18 Bergur Jónsson Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum 6,73
17-18 Benjamín Sandur Ingólfsson Áki frá Hurðarbaki 6,73
19 Védís Huld Sigurðardóttir Kulur frá Hafsteinsstöðum 6,53
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule