MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Úrslit: Fimmgangur 2026

2/3/2026

 
Picture
Þorgeir Ólafsson sigraði fimmganginn annað árið í röð í Meistaradeild Líflands 2026 en í þetta sinn á hryssunni Blíðu frá Bergi. Þorgeir keppti sem uppboðsknapi þetta kvöldið en er jafnframt liðsfélagi í IB bílar. Hann hlaut því ekki stig fyrir lið sitt en fær þó stig í einstaklingskeppninni. Það voru síðan þeir Hans Þór Hilmarsson og Ölur frá Reykjavöllum sem lönduðu öðru sætinu. Ásmundur Ernir Snorrason og Askur frá Holtsmúla 1 ásamt Árna Birni Pálssyni og Lazarusi frá Ásmundarstöðum 3 voru jafnir í þriðja sæti.
Picture
Það var hart barist í B úrslitum og að þeim loknum voru 3 knapar jafnir í efsta sæti, þau Gústaf Ásgeir og Gýmir frá Skúfslæk, Helga Una og Karl frá Kráku og Jakob Svavar og Safír frá Skúfslæk sem stóðu jöfn. En eftir sætaröðun fór það svo að Jakob Svavar og Safír stóðu uppi sem sigurvegarar B úrslitanna. Á eftir þeim komu Benjamín Sandur á Goða frá Oddgeirshólum 4, Bergur Jónsson og Salvar frá Hellubæ og síðan Flosi Ólafsson á Suðra frá Varmalandi.
Picture
A úrslit
1 Þorgeir Ólafsson Uppboðsknapi Blíða frá Bergi 7,55
2 Hans Þór Hilmarsson Hjarðartún Ölur frá Reykjavöllum 7,43
3-4 Árni Björn Pálsson Topreiter/Sumarliðabær Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 7,33
3-4 Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir/Hest.is Askur frá Holtsmúla 1 7,33
5 Jón Ársæll Bergmann IB bílar Seytla frá Íbishóli 7,05

​
B Úrslit
6 Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún Safír frá Laugardælum 7,36
7-8 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hestvit/Árbakki Gýmir frá Skúfslæk 7,36

7-8 Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún Karl frá Kráku 7,36
9 Benjamín Sandur Ingólfsson IB bílar Goði frá Oddgeirshólum 4 7,17
10 Bergur Jónsson IB bílar Salvar frá Hellubæ 7,07
11 Flosi Ólafsson Hrímnir/Hest.is Suðri frá Varmalandi 7,05
Picture
Liðakeppnina vann, nú í þriðja sinn, lið Hjarðartúns. Líkt og á öðrum keppniskvöldum þessarar leiktíðar voru allir knapar liðsins í úrslitum. Hans og Ölur, Jakob og Safír ásamt Helgu og Karli. Hjarðartún leiðir núna með 125.5 stig, Topreiter/Sumarliðabær í öðru með 86 stig og í því þriðja Hrímnir/Hest.is með 84 stig. 

Einstaklingskeppnina leiðir Ásmundur Ernir með 25.5 stig. Þar á eftir koma, nokkuð jöfn á stigum, Aðalheiður, Jakob og Jón Ársæll. En það er nóg eftir af stigum í pottinum og eflaust margt eftir að breytast! Stöðuna í stigakeppninni má nálgast betur á þessari síðu HÉR.

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur og sérstakar þakkir fær Eques fyrir að bjóða áhorfendum frítt í stúkuna. Við minnum svo á næsta mót Meistaradeildar Líflands sem verður föstudaginn 6. mars en þá verður keppt í Gæðingalist.
Höfundaréttur © 2008-2026 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule