|
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Tölti T1 og flugskeiði í gegnum höllina. Keppt verður föstudaginn 27. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 25. mars kl. 23:59. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á [email protected]. Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR. |
|