Næsta keppniskvöld Meistaradeildar Líflands verður fimmtudagskvöldið 6. febrúar og hefst stundvíslega klukkan 19:00 þegar keppt verður í slaktaumatölti. Keppnin verður haldin í HorseDay Höllinni, Ingólfshvoli, og má gera ráð fyrir að fremstu hestar landsins mæti til leiks.
HRINGDU býður frítt í stúkuna, þannig að áhorfendur geta tryggt sér sæti og upplifað keppnina í einstakri stemningu á staðnum. Fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verður Veisluþjónusta Suðurlands með glæsilegt hlaðborð á staðnum, og gestir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantanir fara fram á Dineout.is. Húsið opnar klukkan 17:00 Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni ásamt áhugaverðum viðtölum þar sem kappkostað verður að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu! Steikarhlaðborð og frátekið sæti í stúkunni! Aðalréttir
Einnig verða til sölu:
.Sjáumst á fimmtudaginn! |
|