MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Lokamót Meistaradeildar Líflands, föstudaginn 27. mars!

23/3/2026

 
Picture
Nú er komið að stóru stundinni! Lokamót Meistaradeildar Líflands verður föstudaginn næstkomandi, 27. mars.  Keppni hefst klukkan 19:00 í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli og hvetjum við alla hestaáhugamenn til að mæta á staðinn og sjá okkar bestu knapa etja kappi um sigur í Meistaradeild Líflands 2026!

Í fyrra voru það Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði sem sigruðu töltið og Konráð Valur og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk sem fóru hraðast í gegnum höllina.  Dregið verður í rásröð á EiðfaxaTV á fimmtudaginn - þá kemur í ljós hvort þessir kappar mæti til að verja titilinn.


LÍFLAND býður frítt í stúkuna fyrir alla sem mæta en fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verður að vanda glæsilegt steikarhlaðborð á staðnum og þeir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantið HÉR ! (Ath. Takmörkuð sæti í boði). Húsið opnar klukkan 16:30 og er tilvalið að koma með fjölskyldunni eða vinahópnum og njóta áður en keppnin hefst. Hlaðborðið er hlaðið dýrindis veitingum, kjöti og fjölbreyttu meðlæti, steiktu og fersku grænmeti og bragðgóðum sósum. Þetta er veisla sem kitlar bragðlaukana! Ásamt hlaðborðinu eru í boði úrval veitinga í veislusal HorseDay hallarinnar! 

Fyrir þá sem ekki komast í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni og kappkostað verður að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu!

Það er óhætt að segja að mikil spenna ríki í stigakeppninni, bæði í einstaklings- og liðakeppninni, og stutt á milli efstu sæta. Ásmundur Ernir leiðir einstaklingskeppnina fyrir lokakvöldið með 38.5 stig en einungis einu og hálfu stigi á eftir honum er Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir með 37 stig og Árni Björn í þriðja sæti með 35 stig.

Liðakeppnin er ekki síður spennandi en ljóst er að spenna ríkir milli efstu tveggja liðanna. Það er lið Topreiter/Sumarliðabæjar sem leiðir með 218 stig, einungis hálfu stigi á eftir er lið Hjarðartúns með 217.5 stig. Síðan verður hart barist um þriðja sætið í deildinni sem öll hin liðin eiga möguleika á. 
Þar sem keppt er í tveimur greinum á lokakvöldinu er nóg af stigum eftir í pottinum og alveg óljóst hver úrslitin verða í Meistaradeild Líflands 2026! Í fyrra var það lið Sumarliðabæjar sem sigruðu liðakeppnina og Eyrún Ýr einstaklingskeppnina. Hverjir ætli sigri í ár?!

Komið og njótið dýrindis veitinga, úrvals félagsskaps og heimsklassa hestamennsku! 

Sjáumst í HorseDay-Höllinni!



Höfundaréttur © 2008-2026 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule