|
HorseDay býður ykkur velkomin í HorseDay höllina þegar keppt verður í sklaktaumatölti í Meistaradeild Líflands. Keppni hefst stundvíslega kl. 19:00, fimmtudaginn 5. febrúar. Í fyrra voru það Ásmundur Ernir og Hlökk sem sigruðu með nokkrum yfirburðum. Á þriðjudaginn kom í ljós hverjir mæta til leiks þegar dregið var í rásröð hjá EIÐFAXA TV.
ÁB veitingar mun bjóða upp á hið margrómaða hlaðborð sem færir ykkur einnig frátekið sæti í stúkunni á besta stað – en aðeins ef þið pantið fyrir fram! Tilvalið að mæta með vinum eða fjölskyldu og eiga skemmtilega kvöldstund með bestu gæðingum landsins. Húsið opnar kl. 17:00. Pantanir á hlaðborðið fara fram hér: HÉR Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu á www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni ásamt áhugaverðum viðtölum og kappkostað er að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu! Sjáumst hress á fimmtudaginn! |
|