Á föstudaginn 14. mars n.k. verður keppt í Gæðingalist í Meistaradeild Líflands og hefst keppnin stundvíslega klukkan 19:00. Keppnin verður haldin í HorseDay Höllinni, Ingólfshvoli. HYDROSCAND Á ÍSLANDI býður ykkur frítt í stúkuna svo þið getið upplifað keppnina í einstakri stemningu á staðnum. Fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verður glæsilegt steikarhlaðborð á staðnum, og gestir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Njóttu ljúffengrar máltíðar með okkur áður en keppnin hefst. Pantanir fara fram á HÉR. Húsið opnar klukkan 17:00.
Fyrir þá sem komast ekki í höllina verður keppnin sýnd í beinni útsendingu www.eidfaxitv.is þar sem hægt verður að fylgjast með keppninni ásamt áhugaverðum viðtölum og kappkostað er að senda stemninguna úr höllinni heim í stofu! Steikarhlaðborð og frátekið sæti í stúkunni! Hlaðborðið er hlaðið dýrindis veitingum, kjöti og fjölbreyttu meðlæti, steiktu og fersku grænmeti og bragðgóðum sósum. Þetta er veisla sem kitlar bragðlaukana! -Verð 4.990kr. Pantaðu HÉR. Ásamt hlaðborðinu eru í boði úrval veitinga í veislusal HorseDay hallarinnar! .Sjáumst á föstudaginn! |
|