MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule

Úrslit: Slaktaumatölt

10/2/2026

 
Picture
Jón Ársæll Bergmann og Díana frá Bakkakoti komu, sáu og sigruðu slaktaumatöltið í Meistaradeild Líflands 2026. Arnhildur og Frosti frá Hjarðatúni höfnuðu í öðru sæti ,líkt og í fyrra, og sigurvegararnir frá því í fyrra, Ásmundur Ernir og Hlökk frá Strandarhöfði höfnuðu í því þriðja. Þar á eftir komu Jakob og Hrefna frá Fákshólum og Aðalheiður Anna og Flóvent frá Breiðsstöðum.
​

Picture
A úrslit
1 Jón Ársæll Bergmann IB bílar Díana frá Bakkakoti 8,71
2 Arnhildur Helgadóttir Hjarðartún Frosti frá Hjarðartúni 8,38
3 Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir/Hest.is Hlökk frá Strandarhöfði 8,25
4 Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún Hrefna frá Fákshólum 7,83
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar/Margrétarhof Flóvent frá Breiðstöðum 7,67
Picture
Þær Helga Una og Björt frá Kráku leiddu B úrslitin að lokinni forkeppni en eftir harða og spennandi keppni voru það Eyrún Ýr og Drangur frá Steinnesi sem sigruðu B úrslitin og höfnuðu því í sjötta sæti og Helga Una og Björt frá Kráku höfnuðu í því sjöunda. Uppboðsknapi kvöldsins, Hanne Smidesang, mætti með Tón frá Hjárðartúni og lentu þau í áttunda sæti. Síðan var Glódís Rún á Ottósen frá Ljósafossi í því níunda og Sigurður Vignir og Víkingur frá Hlemmiskeiði í því tíunda.

​
B úrslit
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Topreiter/Sumarliðabær Drangur frá Steinnesi 7,67
7 Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún Björt frá Kráku 7,62
8 Hanne Oustad Smidesang Uppboðsknapi Tónn frá Hjarðartúni 7,58
9 Glódís Rún Sigurðardóttir Hestvit/Árbakki Ottesen frá Ljósafossi 7,29
10 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar/Margrétarhof Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,25
Picture
Liðakeppnina vann lið Hjarðartúns, en allir knapar liðsins voru í úrslitum. Arnhildur og Frosti frá Hjarðartúni í öðru sæti, Jakob Svavar Sigurðsson og Hrefna frá Fákshólum í fjórða sæti og Helga Una Björnsdóttir á Björt frá Kráku í áttunda sæti. Hjarðartún leiðir núna með 82 stig, Topreiter/Sumarliðabær í öðru með 61.5 stig og í því þriðja Ganghestar/Margrétarhof með 56 stig. 

Einstaklingskeppnina leiðir Aðalheiður með 18 sig en jafnframt er Ásmundur einar með 18 sig. En þar sem hún er með fleiri sigra fær hún fyrsta sætið. En það er nóg eftir af stigum í pottinum og eflaust margt eftir að breytast! Stöðuna í stigakeppninni má nálgast betur á þessari síðu HÉR.

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur og þökkum HorseDay fyrir að bjóða áhorfendum frítt í stúkuna. Við minnum svo á næsta mót Meistaradeildar Líflands sem verður föstudaginn 20. febrúar en þá verður keppt í fimmgangi.



Niðurstöður: 
1 Jón Ársæll Bergmann IB bílar Díana frá Bakkakoti 8,71
2 Arnhildur Helgadóttir Hjarðartún Frosti frá Hjarðartúni 8,38
3 Ásmundur Ernir Snorrason Hrímnir/Hest.is Hlökk frá Strandarhöfði 8,25
4 Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún Hrefna frá Fákshólum 7,83
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ganghestar/Margrétarhof Flóvent frá Breiðstöðum 7,67
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Topreiter/Sumarliðabær Drangur frá Steinnesi 7,67
7 Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún Björt frá Kráku 7,62
8 Hanne Oustad Smidesang Uppboðsknapi Tónn frá Hjarðartúni 7,58
9 Glódís Rún Sigurðardóttir Hestvit/Árbakki Ottesen frá Ljósafossi 7,29
10 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar/Margrétarhof Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,25
11 Teitur Árnason Topreiter/Sumarliðabær Hrafnar frá Hvoli 7,43
12 Védís Huld Sigurðardóttir Ganghestar/Margrétarhof Ötull frá Narfastöðum 7,37
13 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Topreiter/Sumarliðabær Flaumur frá Fákshólum 7,30
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Hestvit/Árbakki Gýmir frá Skúfslæk 7,20
15 Benjamín Sandur Ingólfsson IB bíar Goði frá Oddgeirshólum 4 7,03
16 Viðar Ingólfsson Hrímnir/Hest.is Bylur frá Kvíarhóli 6,83
17 Þorgeir Ólafsson IB bílarGígjar frá Bakkakoti 6,80
18 Brynja Kristinsdóttir Hrímnir/Hest.is Snorri frá Litla-Dal 6,60
19 Hinrik Bragason Hestvit/Árbakki Hugur frá Hólabaki 6,20
​
Höfundaréttur © 2008-2025 I Meistaradeild Líflands í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • IB bílar
    • Top Reiter / Sumarliðabær
  • Fréttir
  • News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur >
      • Gæðingalist
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Úrslit/Results
  • Dagskrá/Schedule