MEISTARADEILD Í HESTAÍÞRÓTTUM
  • Liðin/Teams
    • Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Gangmyllan
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Skeiðvellir / Árheimar
    • Top Reiter
  • Fréttir/News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Dagskrá/Schedule
  • Úrslit/Results

Auðholtshjáleiga / Strandarhöfuð


Lið Auðsholtshjáleigu / Horse export hefur verið með í deildinni frá árinu 2010 en í ár bætist við ræktunarbúið Strandarhöfuð. Lið Auðsholtshjáleigu sigraði liðakeppnina í fyrsta skipti árið 2016 og fyrstu tvö árin var það eingöngu skipað konum en nú er það blandað. Ásmundur Ernir Snorrason er liðsstjóri en aðrir liðsfélagar eru Guðmundur Björgvinsson, Jóhann Magnússon, Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Þórdís Erla Gunnarsdóttir.
Team Auðsholtshjáleiga has been a part of the Champions league since 2010 but now they have teamed up with Strandarhöfuð. The first two years the team members where only women but now this is a mixed team. Riders are, Ásmundur Ernir Snorrason, the team leader, Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Þórdís Erla Gunnarsdóttir, Guðmundur Björgvinsson and Jóhann Magnússon.

Ásmundur Ernir Snorrason


Ásmundur Ernir, liðsstjóri, starfar sem tamingamaður á Strandarhöfði í Landeyjum. Hann var kosinn efnilegasti knapi ársins 2012 og hefur verið framarlega á keppnisbrautinni frá barnsaldri. Hann hefur m.a. verið í úrslitum á Landsmótum, Heimsmeistaramótum og Íslandsmótum auk þess að eiga nokkra Íslandsmeistaratitla. Ásmundur hefur vakið athygli meðal annars á hestunum Rey frá Melabergi, Speli frá Njarðvík, Fræg frá Strandarhöfði og Fáfni frá Efri-Rauðalæk í skeiðgreinum. Ásmundur og Spölur voru í landsliði Íslands 2017 í Oirschot þar sem þeir voru í úrslitum í bæði tölti og fjórgangi en Ásmundur var einnig í landsliði Íslands 2019 í Berlín og keppti þar til úrslita í fjórgangi á Frægi.​
Ásmundur Ernir, team leader, works as a horse trainer at Strandarhöfuð in Landeyjar. He was the most promising rider of the year 2012 and has been really successful on the competition track since he was a young boy. He has been in finals at Landsmót and Íslandsmót and he has gotten several Icelandic championships title. In the past he has been competing on Reyr frá Melabergi, Spölur frá Njarðvík and Frægur frá Strandarhöfði. He and Spölur where a part of the Icelandic national team at WC2017 in Oirschot, but they where in finals both in tölt and four gait. Ásmundur also competed on the WC in Berlin and was in a finals in four gait riding Frægur.
Picture

Þórdís Erla Gunnarsdóttir


Þórdís er tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Hún starfar við tamningar á Auðsholtshjáleigu/Grænhóli. Þórdís Erla hefur verið viðloðandi keppni frá blautu barnsbeini og staðið sig vel í kynbótasýningum.
Þórdís graduated as a riding instructor and trainer from Hólar university. She works at Auðsholtshjáleiga/Grænhóll but Þórdís has been around horses since she was a child. She has done really well on the competition and breeding track.
Picture

GUÐMUNDUR BJÖRGVINSSON


Guðmundur er tamningamaður og rekur tamningastöð á Efri-Rauðalæk ásamt konu sinni Evu Dyröy. Hann er m.a. Íslandsmeistari í fjórgangi 2012 og 2015, hefur setið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu þ.á.m. árið 2013 þegar hann nældi sér í tvö gull á kynbótabrautinni, árið 2015 þegar hann varð heimsmeistari í fjórgangi og árið 2019 þegar hann varð heimsmeistari í 250m. skeiði. Guðmundur hefur auk þessa unnið þrjú gull til viðbótar á kynbótabrautinni á Heimsmeistaramótum. Guðmundur var kosinn knapi ársins árið 2012 og 2015, skeiðknapi ársins 2015 og gæðingaknapi ársins árið 2009. Guðmundur sigraði einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni árið 2013.
Guðmundur is a certified trainer and runs his business at Efri-Rauðalæk with his wife, Eva Dyröy. He has been really successful at the competition track but he was i.e. Icelandic champion in four gait 2012 and 2015. He has been a couple of times in the Icelandic national team i.e. in 2013 he won two golds on the breeding track at the WC in Berlin, in 2015 he became the World Champion in four gait riding Hrímnir frá Ósi and in 2019 he became World Champion in 250m. pace race. Guðmundur was elected the rider of the year in 2012 and 2015, the pace rider of the year in 2015 and the gæðinga rider of the year in 2009. Guðmundur won the individual competition in the leauge 2013.
Picture

Jóhann Birgir Magnússon


Jóhann Birgir hefur lengi gengið braut mennta og æfinga í faginu. Upphafið af því öllu var reiðnámskeið hjá Reyni Aðalsteinssyni vorið 1979. Tók öll skólastig sem í boði voru á Hólum á sínum tíma. Stundar hrossarækt og tamningar á Bessastöðum í Húnaþingi vestra og notar þau tækifæri sem gefast við að kynna hross úr sinni ræktun í keppni og sýningum.
Jóhann Birgir, studied at Hólar University. He lives at Bessastaðir in Húnaþing vestra where he trains horses and has his own breeding. He uses every opportunity he gets to introduce the horses from his breeding in competitions and breeding shows.
Picture

Sylvía Sigurbjörnsdóttir


Sylvía er útskrifaður reiðkennari og þjálfari frá Háskólanum á Hólum. Sylvía hefur vakið athygli fyrir prúðmannlega og glæsilega reiðmennsku. Sylvía og gæðingur hennar Héðinn-Skúli hafa vakið mikla athygli eftir glæsilega framgöngu.
Sylvía graduated at the top of her class at Hólar as a riding instructor and trainer. Sylvía is really professional and has wowed the audience with her harmonious riding. 
Picture

Auðsholtshjáleiga / Horse Export info


Auðsholtshjáleiga í Ölfusi er það hrossaræktarbú sem oftast hefur hlotið titilinn Ræktunarbú ársins en búið hefur hampað titlinum sex sinnum, 1999, 2003, 2006, 2008, 2011 og 2013. Eigendur búsins eru þau Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir en samhliða búinu reka þau útflutningsfyrirtækið Gunnar Arnarsson ehf. Aðalbækistöð búsins er á Grænhóli í Ölfusi. Þar er frábær aðstaða til tamninga og þjálfunar sem byggist meðal annars á frábærum reiðleiðum, reiðhöll, hringvelli með beinni braut, hlaupabretti og að sjálfsögðu glæsilegu hesthúsi.
English info missing

www.horseexport.is


Strandarhöfuð info


Strandarhöfuð er staðsett á Suðurlandi nánar tiltekið Vestur-Landeyjum. Búið hefur verið í eigu hjónanna Auðar M. Möller og Guðmunds Más Stefánssonar frá árinu 2003, en full starfsemi hófst sumarið 2014. Á Strandarhöfði fæðast á bilinu 10-12 folöld á ári og lögð er mikil áhersla á að rækta topp keppnishesta.
​English info missing.

WWW.strandarhofud.IS

Höfundaréttur © 2008-2021 I Meistaradeildin í Hestaíþróttum I Allur réttur áskilinn.
  • Liðin/Teams
    • Auðsholtshjáleiga / Strandarhöfuð
    • Ganghestar / Margrétarhof
    • Gangmyllan
    • Hestvit / Árbakki
    • Hjarðartún
    • Hrímnir / Hest.is
    • Skeiðvellir / Árheimar
    • Top Reiter
  • Fréttir/News
  • Meistaradeild
    • Dómarar/Judges
    • Stjórn/Board
    • Sagan
    • Leikreglur
    • Samþykktir
    • Sigurvegarar/Winners
  • Staða/Position
  • Dagskrá/Schedule
  • Úrslit/Results