Liðin
Auðsholtshjáleiga
Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks er lið Auðsholtshjáleigu. Nokkrar breytingar hafa átt sér stað á liðinu frá því í fyrra en það er skipað Þórdísi Erlu Gunnarsdóttur, liðsstjóra, Eyvindi Mandal Hreggviðssyni, Hauki Baldvinssyni og Lenu Zielinski.
Þetta er þriðja ár Auðsholtshjáleigu í deildinni en það fyrsta sem það er ekki eingöngu skipað konum. Liðið hefur sett svip sinn á deildina með prúðmannlegri framkomu og glæsilegri reiðmennsku. Við bjóðum lið Auðsholtshjáleigu velkomið til leiks.
Þórdís Erla Gunnarsdóttir, liðsstjóri, er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hún starfar við tamningar á Grænhóli. Þórdís Erla hefur verið viðloðandi keppni frá blautu barnsbeini en hefur jafnframt verið að koma sterk inn í kynbótasýningum síðustu ár.
Eyvindur Mandal Hreggviðsson er nýliði í deildinni en hann starfar við tamningar á Grænhól í vetur. Eyvindur hefur verið að gera góða hluti í keppni í Svíðþjóð undanfarin ár. Hann er margfaldur sænskur meistari og Norðurlandameistari.
Haukur Baldvinsson er mættur aftur til leiks í Meistaradeildinni eftir smá hlé. Hann hefur verið að gera góða hluti á keppnisvellinum undanfarin ár og er hann nýbakaður Íslandsmeistari i gæðingaskeiði frá því í sumar.
Lena Zielinski hefur verið að gera góða hluti á keppnis- og kynbótabrautinni á undanförnum árum. Hún starfar við tamningar og þjálfun að Efra-Hvoli við Hvolsvöll.
Auðsholtshjáleiga í Ölfusi er það hrossaræktarbú sem oftast hefur hlotið titilinn Ræktunarbú ársins en búið hefur hampað titlinum fimm sinnum, 1999, 2003, 2006, 2008 og 2011. En búið hefur verið tilnefnt til verðlaunanna ellefu sinnum. Eigendur búsins eru þau Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir en samhliða búinu reka þau útflutningsfyrirtækið Gunnar Arnarsson ehf. sem er stærst á sínu sviði hér á landi. Aðalbækistöð búsins er á Grænhóli í Ölfusi. Þar er frábær aðstaða til tamninga og þjálfunar sem byggist meðal annars á frábærum reiðleiðum, reiðhöll, hringvelli með beinni braut, hlaupabretti og að sjálfsögðu glæsilegu hesthúsi. Heimasíða búsins er horseexport.is
Árbakki / Norður-Götur
Annað liðið sem við kynnum til leiks er Árbakki / Norður-Götur. Ein breyting hefur orðið á liðinu frá því í fyrra og er það nú skipað þeim Hinriki Bragasyni, liðsstjóra, Huldu Gústafsdóttur, Ragnari Tómassyni og Teiti Árnasyni.
Liðið lenti í öðru sæti í stigakeppninni á síðasta ári og voru Hulda, Hinrik og Teitur öll á meðal tíu stigahæstu keppenda í einstaklingskeppninni. Við bjóðum liðið velkomið til leiks.
Hinrik Bragason, liðsstjóri, er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka. Hinrik er margfaldur heims-, Íslands- og Norðurlandameistari. Hann hefur einnig verið að gera góða hluti við sýningu kynbótahrossa undanfarin ár. Hinrik sigraði A-flokk á LM 2011 og var kjörinn gæðingaknapi ársins 2011.
Hulda Gústafsdóttir er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka. Samhliða rekstri Árbakka hesta reka þau Hinrik útflutningsfyrirtækið Hestvit ehf. Hulda er margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari og hefur jafnframt verið í íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótum.
Ragnar Tómasson er ungmenni og kemur úr hestamannafélaginu Fáki. Hann hefur verið að gera góða hluti í keppni undanfarin ár og er meðal annars í 2 sæti á heimslistanum í 100m skeiði.
Teitur Árnason er ungmenni og kemur úr hestamannafélaginu Fáki. Teitur er margfaldur Íslandsmeistari í yngri flokkum en er jafnframt Íslandsmeistari í 150m skeiði 2008 - 2009.
Árbakki er alhliða hestamiðstöð með frábærri aðstöðu til tamninga og þjálfunar. Nýlegt hesthús, reiðskáli og hringvöllur. Hestaverslun er stór þáttur í starfsseminni. Mikill fjöldi gæðinga og úrvals kynbótahrossa fer í gegnum stöðina á hverju ári.
Ræktunarbúið Norður Götur ehf. var stofnað árið 2007 af hjónunum Orra Ingvasyni og Auði Hansen sem búa þar ásamt börnunum sínum. Tilgangurinn að gera Götur að hrossaræktabýli til eftirbreytni. Markmið þeirra er að gera betur í dag en í gær.
Ganghestar / Málning
Næsta lið sem við kynnum til leiks er lið Ganghesta / Málningar Þar er Sigurður Vignir Matthíasson liðsstjóri eins og áður en tveir nýir liðsmenn hafa bæst í hópinn. Aðrir liðsmenn eru Edda Rún Ragnarsdóttir, Sara Ástþórsdóttir og Valdimar Bergstað.
Við bjóðum lið Ganghesta / Málningar velkomið til leiks.
Sigurður Vignir Matthíasson, liðsstjóri, rekur alhliða hestamiðstöð, Ganghesta og Reiðskóla Reykjavíkur á Fákssvæðinu ásamt eiginkonu sinni, Eddu Rún Ragnarsdóttur. Sigurður hefur verið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu bæði á heimsmeistaramótum og Norðurlandamótum. Hann er margfaldur heims- og Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari og mætti lengi telja áfram.
Sara Ástþórsdóttir er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hún stundar tamningar, þjálfun og ræktun að Álfhólum í Vestur-Landeyjum. Sara hefur verið að gera góða hluti í keppni og kynbótasýningum á undanförnum árum og er einn af fáum knöpum sem hefur riðið hrossi í 10,0 fyrir tölt og vilja og geðslag í kynbótadómi.
Sylvía Sigurbjörnsdóttir er tamningmaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hún er jafnframt nýr knapi í deildinni. Sylvía hefur átt góð gengi að fagna allt frá því í barnaflokki og á marga glæsta sigra í farteskinu.
Valdimar Bergstað er úr hestamannafélaginu Fáki og hefur verið í íslenska landsliðinu á heimsmeistara- og Norðurlandamótum. Hann er margfaldur Íslandsmeistari, heimsmeistari, landsmótssigurvegari ásamt mörgum öðrum stórum sigrum.
Málning var stofnuð 1953. Fyrirtækið framleiðir og selur málningu og er leiðandi á því sviði á Íslandi. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt áherslu á vöruþróun og rannsóknir og er í samstarfi við erlenda framleiðendur eins og Jotun í Noregi og Bona Keml í Svíþjóð. Innlend vöruþróun fyrir hinar séríslensku aðstæður er samt grunnurinn að flestum vörum félagsins.
Ganghestar ehf. er alhliða hestamiðstöð þar sem boðið er upp á hefðbundna þjónustu við hestafólk, kaup og sölu á hrossum, reiðkennslu, frumtamningar og þjálfun á kynbóta- og keppnishrossum. Eigendur fyrirtækisins eru Sigurður Vignir Matthíasson og Edda Rún Ragnarsdóttir. Ganghestar ehf. er með aðsetur að Fákabóli 3 á félagssvæði Fáks og er starfsemi í gangi þar allan ársins hring. Yfir sumartímann fer þar einnig fram starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur sem er í eigu sömu rekstaraðila.
Hrímnir
Fjórða liðið sem við kynnum til leiks er Hrímnisliðið. Liðið hefur tekið töluverðum breytingum frá því í fyrra en Viðar Ingólfsson er áfram liðsstjóri en aðrir liðsmenn eru Artemisia Bertus, Daníel Ingi Smárason og John Kristinn Sigurjónsson.
Þetta er annað ár Hrímnis í deildinni og býður Meistaradeildin liðið velkomið til leiks á ný.
Viðar Ingólfsson, liðsstjóri, stundar tamningar og þjálfun að Kvíarhóli, Ölfusi. Hann er margfaldur Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari í tölti ásamt mörgum öðrum fræknum sigrum. Hann var íþróttaknapi ársins 2008 og gæðingaknapi ársins 2007. Viðar sigraði Meistaradeildina 2007 og 2008.
Artemisia Bertus er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla og starfaði þar um nokkurra ára skeið. Hún hefur verið með aðstöðu á Ingólfshvoli frá því í haust. Artemisia hefur verið að gera góða hluti í kynbótasýningum á undanförnum árum.
Daníel Ingi Smárason stundar sína hestamennsku í Hafnarfirði. Daníel Ingi hefur verið að gera góða hluti í keppni undanfarin ár en þó sérstaklega á skeiðbrautinni. Hann sigraði 100m skeið á LM 2011. Daníel er í 1 sæti á World ranking listanum í 100m skeiði ásamt því að vera í 4 sæti á listanum í 250m skeiði.
John Kristinn Sigurjónsson er tamningamaður FT og starfar við tamningar að Ármóti á Rangárvöllum. John hefur verið að gera góða hluti í keppni og kynbótasýningum á undanförnum árum.
Icesaddles er framleiðandi gæða hnakka og reiðtygja undir vörumerkinu Hrímnir. Hnakkarnir eru framleiddir af einum virtasta söðlasmiði heims, en auk Hrímnis framleiðir hann hnakka fyrir marga af fremstu reiðmönnum erlendra hestakynja. Lögð hefur verið áhersla á gæði, næmni og gott jafnvægi, en hnakkurinn hefur verið þróaður í samstarfi við stórfyrirtæki á við Dupont og Bayer. Hnakkarnir eru seldi í 15 löndum og notaðir af fjölda fagmanna.
Lýsi
Fimmta liðið sem við kynnum til leiks er elsta liðið í deildinni en það er lið Lýsis. Liðið bar sigur úr býtum í liðakeppninni 2011. Tvær breytingar hafa orðið á liðinu frá því í fyrra en liðsstjórinn í ár er sá sami og undanfarin ár, Sigurður Sigurðarson en með honum eru þeir Eyjólfur Þorsteinsson, Sigurbjörn Bárðarson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
Við bjóðum lið Lýsis velkomið til leiks.
Sigurður Sigurðarson, liðsstjóri, rekur tamningastöð á Þjóðólfshaga ásamt eiginkonu sinni. Sigurður er fyrsti sigurvegari Meistaradeildarinnar en hann sigraði hana árið 2001 og svo aftur árið 2011. Hann hefur setið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu, er heimsmeistari, margfaldur Íslandsmeistari, heimsmethafi í 100m skeiði og mætti lengi telja áfram.
Erla Katrín Jónsdóttir, er ungmenni úr hestamannafélaginu Fáki. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún verið að gera góða hluti í keppni á undanförnum árum.
Eyjólfur Þorsteinsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann hefur verið að gera góða hluti á keppnisvellinum undanfarin ár og er meðal annars margfaldur Íslandsmeistari auk þess að hafa orðið heimsmeistari í samanlögðum greinum á HM 2011.
Sigurbjörn Bárðarson er sá knapi sem hefur oftast sigrað Meistaradeildina eða þrisvar sinnum, árin 2002, 2009 og 2010. Sigurbjörn hefur unnið flesta titla sem hægt er að vinna í hestaíþróttum ásamt því að vera eini hestamaðurinn sem hefur hampað titlinum íþróttamaður ársins.
Lýsi var stofnað 1938. Það framleiðir afurðir úr lýsi til manneldis. Sem leiðandi fyrirtæki á heimsvísu leggur Lýsi mikla áherslu á gæði og gæðastjórnun við framleiðslu vörunnar. Í apríl 2007 fékk Lýsi Útflutningsverðlaun forseta Íslands. Fyrirtækið fékk verðlaunin "fyrir þann einstaka árangur sem fyrirtækið hefur náð í sölu- og markaðsmálum á afurður úr lýsi og fyrir þá framsýni sem fyrirtækið hefur sýnt í vöruþróun og eflingu þekkingar og færni á sínu sviði."
Spónn.is
Sjötta liðið sem við kynnum til leiks í Meistaradeild í hestaíþróttum er Spónn.is en það kom nýtt inn í deildina í fyrra. Liðsstjóri liðsins er Sigursteinn Sumarliðason og með honum eru þeir Elvar Þormarsson, Ólafur Ásgeirsson og Ævar Örn Guðjónsson.
Bjóðum við þá félaga velkomna til leiks.
Sigursteinn Sumarliðason, liðsstjóri, stundar tamningu og þjálfun á Selfossi. Hann var kjörinn gæðingaknapi ársins 2010 og íþróttaknapi ársins 2011, varð heimsmeistari í gæðingaskeiði 2007. Landsmóssigurvegari og Íslandsmeistari í tölti 2011.
Elvar Þormarsson stundar tamningar og þjálfun á Hvolsvelli. Stundar hrossarækt ásamt fjölskyldu sinni á Strandarhjáleigu og hlutu þau titilinn ræktunarbú ársins 2009. Hann varð Íslandsmeistari í fjórgangi 2010 og hefur verið að gera góða hluti í keppni og sýningum á undanförnum árum.
Ólafur Ásgeirsson hefur stundað tamningar og þjálfun að Vesturkoti, Skeiðum, um nokkurt skeið. Ólafur hefur staðið framarlega á keppnisbrautinni undanfarin ár og einnig verið að gera góða hluti í kynbótasýningum.
Ævar Örn Guðjónsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð á félagssvæði Andvara. Á undanförnum árum hefur hann náð glæstum árangri á keppnisbrautinni sem og á kynbótabrautinni.
Fengur ehf. (spónn.is) var stofnað á árinu 2009 af Sigurði Halldórssyni. Fyrirtækið rekur meðal annars endurvinnslu sem sett var upp í framhaldi af tilraunum sem gerðar voru á árinu 2008 um nýtingu timburs sem fellur til hér á landi til framleiðslu á spón. Lögð er áhersla á að nota vistvæna orkugjafa til framleiðslunnar.
Í dag framleiðir endurvinnslan spón fyrir íslenskan landbúnað. Áætlað er að framleiða um 3000 tonn á ári fyrir innlendan markað.
Top Reiter / Ármót
Sjöunda og síðasta liðið sem við kynnum til leiks er lið Top Reiter / Ármóts. Liðsstjóri hjá þeim er Guðmundur Björgvinsson og með honum eru þeir Jakob Sigurðsson, Sigurður Óli Kristinsson og Þorvaldur Árni Þorvaldsson.
Við bjóðum liðið Top Reiter / Ármót velkomið til leiks.
Guðmundur Björgvinsson, liðsstjóri, er tamningamaður FT. Hann rekur tamningastöð á Ingólfshvoli, Ölfusi. Guðmundur er Landsmótssigurvegari, hefur setið nokkrum sinnum í íslenska landsliðinu og hefur verið að gera góða hluti í kynbótasýningum.
Jakob S Sigurðsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð að Steinsholti, Hvalfjarðarsveit. Hann hlaut knapaverðlaun FT á LM2008, Íslandsmeistari í slaktaumatölti 2010 og hefur jafnframt verið að gera góða hluti jafnt í kynbótasýningum sem og á keppnisvellinum á undanförnum árum.
Sigurður Óli Kristinsson stundar tamningar og þjálfun að Fákshólum, Ásahrepp. Sigurður hefur átt góðu gengi að fagna í keppni á undanförnum árum og riðið til úrslita á landsmótum og Íslandsmótum ásamt því að vera að gera góða hluti í kynbótasýningum.
Þorvaldur Árni Þorvaldsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann stundar tamningu og þjálfun að Hvoli í Ölfusi. Þorvaldur er margfaldur Íslandsmeistari, hefur átt sæti í íslenska landsliðinu og verið í toppbaráttunni bæði í gæðinga- og íþróttakeppni á undanförnum árum.
Að Ármótum á Rangárvöllum er eitt glæsilegasta hrossaræktar- og ferðaþjónustubýli á Íslandi. Þar er stunduð metnaðarfull hrossarækt ásamt því að boðið er upp á að taka hryssur og stóðhesta í uppeldi, sumarbeit og/eða vetrarfóðrun. Þar er einnig boðið upp á skotveiði, stangveiði og sérstakar ævintýraferðir ásamt því að taka á móti hópum í gistingu, grillveislur, ráðstefnur og aðrar uppákomur.
Verslunin Top Reiter var opnuð í desember 2007. Þar er að finna flest allt sem þarf til hestamennskunnar. Verslunin kappkosar að bjóða faglega og persónulega þjónustu í fallegu umhverfi. Heimasíða Top Reiter er www.topreiter.is.